Kleinan heiðruð í sjötta sinn

Uppskriftin „Kleinurnar sem Garðbæingar elska“ fylgir hér með í tilefni dagsins. Ljósmynd/Aðsend

Kleinudagurinn er haldinn í sjötta sinn í dag, 10. nóvember, en fyrst var efnt til hans árið 2021. Að baki framtakinu standa Vinir kleinunnar, sem vilja festa daginn í sessi og halda íslenskri baksturshefð á lofti.

Á vef kleinudagsins eru bakarí, kaffihús, verslanir og vinnustaðir hvött til að hafa kleinur á boðstólum. Fólk er jafnframt hvatt til að deila mynd af kleinunni sinni á Instagram, þar sem haldið er úti reikningnum @kleinudagurinn.

Má ekki keppa við laufabrauðið

Dagsetningin var valin með dimma haustdaga í huga. Aðstandendur benda á að vorið sé ríkt af tilefnum til að gera sér dagamun, svo sem bolludegi, páskum og sumardeginum fyrsta. Haustið mætti hins vegar gjarnan fá sinn eigin hátíðisdag.

Hugmyndin var að skapa tilefni fyrir fjölskyldur til að hittast og steikja kleinur þegar vetrarlægðirnar dynja á. Dagurinn mætti þó ekki vera svo seint á árinu að hann keppti við laufabrauðsgerðina fyrir jólin.

„Nóvember veitir ekki af séríslenskum hátíðardegi og það er fátt betra fyrir sálina á dimmum haustdögum en að gæða sér á nýsteiktri kleinu með sínum nánustu,“ segir á vef kleinudagsins.

Vilja halda í hefðina

Fyrirmyndirnar má meðal annars finna á Norðurlöndum, þar sem tiltekið bakkelsi hefur fengið sinn eigin dag, líkt og kanelsnúðurinn í Svíþjóð.

Vinir kleinunnar leggja áherslu á mikilvægi þess að halda í gamlar og góðar íslenskar baksturshefðir. Þau segjast ekki hafa fjárhagslega hagsmuni af framtakinu heldur sé verkefnið sprottið af áhuga á að láta gott af sér leiða í þágu kleinunnar og íslensks þjóðlífs.

Tilefnið er því til staðar til að setja upp kaffið og bera fram kleinur, hvort sem þær eru heimasteiktar eða sóttar í næsta bakarí.

Kleinur með vanillu og sítrusberki

Í tilefni kleinudagsins fylgir hér uppskrift frá Salt Eldhúsi. Vanilla, kardimommur og rifinn appelsínu- og sítrónubörkur gefa kleinunum gott bragð. Þær eru bestar nýsteiktar en einnig má frysta þær og hita síðar þegar löngunin í kleinu með kaffinu gerir vart við sig.

Kleinur Salt Eldhúss

Í tilefni kleinudagsins fylgir hér uppskrift frá Salt Eldhúsi.

Í tilefni kleinudagsins fylgir hér uppskrift frá Salt Eldhúsi. Ljósmynd/Aðsend

  • 1 kg hveiti
  • 200 g sykur
  • 6–8 tsk. lyftiduft
  • 100 g kalt smjör, skorið í bita
  • 1 vanillustöng, fræin skafin úr
  • Rifinn börkur af 1 appelsínu
  • Rifinn börkur af 1 sítrónu
  • 1–1½ tsk. malaðar kardimommur, eftir styrkleika
  • 4–5 dl súrmjólk
  • 2 egg
  • Olía til djúpsteikingar

Aðferð

  1. Setjið hveiti, sykur og lyftiduft í skál og blandið saman. Takið þó eina matskeið af sykrinum frá til að blanda við vanillufræin.
  2. Myljið smjörið saman við þurrefnin. Þetta má gera í hrærivél með hræraranum.
  3. Kljúfið vanillustöngina eftir endilöngu og skafið fræin úr henni. Nuddið þeim saman við matskeiðina af sykri sem tekin var frá.
  4. Bætið appelsínuberki, sítrónuberki, vanillusykri og kardimommum út í hveitiblönduna.
  5. Sláið eggin saman og bætið þeim út í ásamt súrmjólkinni. Hrærið létt saman og gætið þess að hræra ekki of mikið.
  6. Skiptið deiginu í tvennt og fletjið út á hveitistráðu borði. Skerið í tígla, skerið rauf í miðju hvers tíguls og dragið annan endann í gegnum raufina til að mynda kleinu.
  7. Hitið olíuna í stórum potti og steikið kleinurnar í heitri olíunni.
  8. Leggið nýsteiktar kleinurnar á eldhúspappír svo umframfeitin renni af þeim.

Kleinurnar eru bestar nýsteiktar. Einnig má frysta þær, taka út eftir þörfum og hita stutta stund í 130 °C heitum ofni.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅