Búist við miklum vindhviðum fyrir austan

Innlent | mbl | 10.11.2026 | 15:53

Vindaspá Veðurstofu Íslands í nótt.

Vindaspá Veðurstofu Íslands í nótt. Kort/Veðurstofa Íslands

Búast má við vindhviðum um allt að 35 m/s í nótt við fjöll frá Öræfum og austur að Djúpavogi.

Þetta kemur fram í ábendingu veðurfræðings Vegagerðarinnar en samkvæmt henni fer að hvessa úr norðvestri suðaustantil á landinu í nótt. 

Varað er við að hviðurnar geti reynst varasamar fyrir ökutæki sem viðkvæm eru fyrir vindi.

Síðdegis á morgun fer að draga úr vindi og lægir loks seint annað kvöld.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅