Landsliðsmenn grunaðir um stórfelld svik
Pantelis Kafes varð Evrópumeistari með gríska landsliðinu í fótbolta. Ljósmynd/Gríska knattspyrnusambandið
Fyrrverandi grísku landsliðsmennirnir Pantelis Kafes og Panagiotis Liadelis sæta rannsókn vegna meints skattsvikanets sem tengist ógreiddum sköttum og tryggingagjöldum að fjárhæð meira en 203 milljónir evra.
Kafes varð Evrópumeistari í fótbolta með Grikklandi árið 2004 en Liadelis lék með gríska landsliðinu í körfubolta.
Hvorugur þeirra er í hópi þeirra grunuðu sem úrskurðaðir hafa verið í gæsluvarðhald.
Nærri 20 manns voru handteknir í síðustu viku. Rannsakendur halda því fram að netið hafi notað málamyndastjórnendur, þar á meðal krabbameinssjúklinga, sem leppa fyrir meira en 2.000 skúffufyrirtæki.
„Fyrirtæki voru opnuð og þeim lokað í raun um leið og skuldir við gríska ríkið mynduðust,“ sagði Constantia Dimoglidou, talskona lögreglunnar, í samtali við ríkisútvarpið ERT.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗