Svarthöfði skrifar: Pólitískir varðhundar
Svarthöfði játar fúslega að í seinni tíð hefur áhuginn á að fylgjast með Silfrinu á mánudagskvöldum í Ríkisútvarpinu daprast. Þó eru á því undantekningar sem sumpart ráðast af þáttastjórnandanum hverju sinni. En í heild sinni virðist Svarthöfða að þar sé trommað upp með viðvaninga í þeim málefnum sem til umræðu eru hverju sinni.
Í gærkvöld var Svarthöfði kominn á fremsta hlunn með að láta þátt kvöldsins fram hjá sér fara en afréð að láta slag standa. Einkum vakti forvitni Svarthöfða að þar skyldi ræða málefni Landsvirkjunar – sem, ólíkt flestum landsmönnum, Svarthöfði er enn áhugasamur um og þá sérstaklega hversu lengi sé hægt að teygja lopann í því innihaldslitla máli.
Og þarna var kominn einn helsti pólitíski varðhundur landsins, Sigurður Kári Kristjánsson, lögmaður og fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokks. Svarthöfði heyrði ekki betur á máli lögmannsins en að hverfa beri frá því að velja faglega í stjórnir fyrirtækja í ríkiseigu og líklega þá til fyrra horfs – að velja þangað aðeins flokksgæðinga og venslamenn ráðamanna.
Hann nefndi til sögunnar að hann hefði á sinni tíð setið í fjölmörgum stjórnum opinberra stofnana og fyrirtækja og sagðist ekki kannast við að stjórnir ræddust nokkru sinni við í fjarveru æðsta starfsmanns fyrirtækisins.
Svarthöfði man reyndar ekki betur en lögmaðurinn hafi verið stjórnarformaður flugfélagsins Play þegar það varð fallítt á síðasta ári. Kannski hefði farið vel á því að stjórn þess félags hefði rætt málefni félagsins án forstjóra þess, að minnsta kosti endrum og sinnum. Svarthöfði hefur ítrekað verið í návígi við stjórnir stórfyrirtækja þar sem það virtist alsiða að stjórnarmenn réðu ráðum sínum án aðkomu forstjóra og þótti góður bragur að því.
Svarthöfði sér ekki betur en gert sé ráð fyrir þessu fyrirkomulagi í starfsreglum stjórnar Landsvirkjunar:
„Forstjóri á sæti á fundum stjórnar og hefur þar málfrelsi og tillögurétt, nema stjórn fyrirtækisins ákveði annað í einstökum tilfellum“, og „Þrátt fyrir ákvæði greinar 4.9 skal stjórn fyrirtækisins koma saman á stjórnarfundi einu sinni á ári, án forstjóra og starfsmanna fyrirtækisins, til þess að ræða stefnumál fyrirtækisins og vinnubrögð stjórnar“.
Þetta telur Svarthöfði nokkuð skýrt og þykir þarna komin enn ein staðfesting á að almennum lesskilningi fer aftur.
Annar varðhundur var staddur í þessum þætti. Þar var komin fremur nýlega kjörinn formaður Vinstri-grænna, flokksins sem þurrkaðist út af þingi með 2,3 prósent fylgi í síðustu kosningum. Svarthöfði skilur þessa útreið flokksins svo að afskipti þeirra hafi verið afþökkuð, þetta kjörtímabilið hið minnsta. Það var því sérkennilegt að formaðurinn í pólitískt gjaldþrota flokki skyldi fá að láta gamminn geisa um stöðuna í bandarískum stjórnmálum, framtíð annarra stjórnmálaflokka og einstakra stjórnmálamanna.
Eins og karlinn sagði forðum segir Svarthöfði; „Þegi þú, seppi, þér hefur ekki verið sigað“.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗