Snýr aftur í Víkina
Markús Árni Vernharðsson er kominn aftur til Víkings og verður aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla. Kemur hann inn í kjölfar þess að Aron Baldvin Þórðarson yfirgaf Víkina og tók við Fylki.
Tilkynning Víkings
Knattspyrnufélagið Víkingur hefur samið við Markús Árna Vernharðsson sem verður aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla í knattspyrnu og jafnframt yfirleikgreinandi liðsins.
Markús Árni er Víkingum að góðu kunnur frá fyrri tíð hjá félaginu. Hann þjálfaði 2. flokk karla ásamt Aroni Þórðarsyni og náðu þeir góðum árangri saman. Síðar starfaði hann sem leikgreinandi meistaraflokks undir stjórn Arnars Gunnlaugssonar, en sneri sér svo að lögfræðistörfum annars staðar. Markús hefur þó aldrei verið langt undan. Allan þennan tíma hefur hann verið félaginu innan handar og alltaf verið reiðubúinn að leggja hönd á plóg. Það er því sérstakt ánægjuefni að fá hann aftur til starfa í fullu hlutverki innan þjálfarateymisins. Þekking hans á félaginu, leikmönnunum og leikstíl liðsins mun nýtast vel.
„Við þekkjum Markús vel og vitum hvað hann stendur fyrir. Hann hefur einstakt auga fyrir leiknum og hefur alla tíð borið hag Víkings fyrir brjósti. Það er frábært að fá hann aftur inn í teymið,“ segir Kári Árnason, yfirmaður knattspyrnumála hjá Víkingi.
Knattspyrnufélagið Víkingur býður Markús Árna hjartanlega velkominn aftur og hlakkar til samstarfsins. Áfram Víkingur!
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗