Í nýtt starf í Færeyjum
Haraldur Árni Hróðmarsson tekur við starfi aðstoðarþjálfara hjá KÍ Klaksvík í Færeyjum, samkvæmt Bolt.fo.
Hann mun starfa með Fróða Benjaminsen, sem tók við þjálfun liðsins í haust. Fróði þekkir til íslenskrar knattspyrnu eftir að hafa leikið með Fram árið 2004.
Haraldur var síðast aðstoðarþjálfari Egersund í norsku B-deildinni en var sagt upp störfum í byrjun október. Áður þjálfaði hann Grindavík.
KÍ hafnaði í öðru sæti færeysku deildarinnar á nýliðnu tímabili. Félagið hefur fjórum sinnum orðið landsmeistari á síðustu sex árum.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/11/1691122.jpg)