Elko búið að uppfæra allar búðir
Raftækjakeðjan Elko opnaði fyrir helgi endurbætta verslun sína á Granda í Reykjavík. Um lokahnykk er að ræða því búðin er sú síðasta í keðjunni til að fá yfirhalningu. Fyrirtækið byrjaði að uppfæra verslanir sínar eina af annarri árið 2020.
Dagbjört Vestmann forstöðumaður verslana segir í samtali við Morgunblaðið að markmið endurbótanna sé að skapa notalegri og hlýlegri upplifun fyrir viðskiptavini og starfsfólk.
„Í staðinn fyrir að leggja áherslu á magn þá viljum við að viðskiptavinurinn fái betra og skemmtilegra umhverfi til að skoða vörurnar. Til dæmis ef þú kemur að skoða heyrnartól þá líði þér dálítið eins og þú sért að koma inn í sérverslun með heyrnartól.“
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗