„Myndi gera það aftur á morgun“
„Ég stend við hverja einustu þessara aðgerða. Ég var stoltur af því að framkvæma þær og myndi gera það aftur á morgun,“ sagði Hegseth á blaðamannafundi í Pentagon í dag. AFP
Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, segist standa við allar þær hernaðaraðgerðir sem hann hefur stýrt í embættistíð Donalds Trumps forseta og myndi ráðast í þær aftur.
Hann hafnar tilraun til að ákæra sig til embættismissis og kallar hana „farsa“ og „skemmdarstarfsemi“.
„Ég stend við hverja einustu þessara aðgerða. Ég var stoltur af því að framkvæma þær og myndi gera það aftur á morgun,“ sagði Hegseth á blaðamannafundi í Pentagon í dag.
Hann varði þar hernaðaraðgerðir Bandaríkjanna í Íran, Jemen og Venesúela, auk árása á meinta fíkniefnasmyglara á Karíbahafi og austanverðu Kyrrahafi.
Ummælin féllu á sama tíma og Bandaríkjaþing færðist nær atkvæðagreiðslu um hvort ákæra ætti Hegseth til embættismissis vegna meintra brota í tengslum við hernaðaraðgerðirnar. Slíkar atkvæðagreiðslur um ráðherra eru fátíðar.
Segir tillögurnar beinast gegn hermönnum
Hegseth reyndi jafnframt að leggja tilraunina til að víkja sér úr embætti að jöfnu við árás á bandaríska hermenn.
„Þessar tillögur segja hverjum og einum þeirra að þjónusta þeirra hafi verið glæpur. Þjónusta þeirra var ekki glæpur. Þetta eru hetjur,“ sagði hann.
Hann lýsti tilrauninni sem „rógburði“ og „skemmdarstarfsemi“.
„Þetta er farsi og sýndarmennska og það vita allir,“ sagði ráðherrann.
Samþykki meirihluti fulltrúadeildarinnar að ákæra Hegseth þarf tvo þriðju hluta atkvæða í öldungadeildinni til að sakfella hann og víkja honum úr embætti. Erfitt yrði að ná þeim stuðningi, jafnvel eftir að demókratar taka einnig við meirihluta þar í janúar. AFP
Sakaður um að hafa brotið gegn lögum um stríðsheimildir
Thomas Massie, þingmaður repúblikana og gagnrýnandi Trumps, hefur lagt fram ákærutillögurnar. Nokkrir ákæruliðanna varða stríðið gegn Íran. Þar er Hegseth sakaður um að hafa brotið gegn lögum um stríðsheimildir, sem kveða á um samráð við þingið vegna hernaðaríhlutunar Bandaríkjanna.
Hegseth hefur lýst stríðinu, sem er afar óvinsælt, sem „hugrökku og sögulegu átaki“.
Hernaðaraðgerðirnar gegn Hútum í Jemen árið 2025 eru einnig meðal ákæruefnanna. Hútar njóta stuðnings Írans. Massie sakar Hegseth um að hafa hafið aðgerðirnar án samþykkis þingsins og án þess að yfirvofandi ógn hafi steðjað að Bandaríkjunum.
Massie lýsti jafnframt árásum á báta meintra fíkniefnasmyglara á Karíbahafi og austanverðu Kyrrahafi sem „aftökum án dóms og laga“. Hann sakaði Hegseth einnig um að hafa fælt fólk frá því að sinna óháðri lögfræðilegri yfirferð innan varnarmálaráðuneytisins.
Þá sakar hann ráðherrann um að hafa reynt að skerða tjáningarfrelsi með því að leitast við að refsa Mark Kelly, öldungadeildarþingmanni demókrata, vegna myndskeiðs. Í því hvöttu Kelly og fleiri þingmenn starfsfólk hersins og leyniþjónustustofnana til að neita að hlýða ólögmætum fyrirmælum.
Trump lýsir yfir stuðningi
Skömmu eftir blaðamannafund Hegseths, sem var sjónvarpað, lýsti Trump yfir stuðningi við ráðherrann.
„Pete Hegseth fær A PLÚS, PLÚS, PLÚS,“ skrifaði forsetinn áttræði á samfélagsmiðil sinn, Truth Social.
Málið reynir á stöðu Trumps eftir afhroð Repúblikanaflokksins í þingkosningunum í síðustu viku. Óánægja með stríðið gegn Íran, sem hefur gengið illa, og miklar hækkanir eldsneytisverðs í kjölfarið áttu þátt í sögulegum ósigri flokksins.
Trump hefur viðurkennt að stríðið hafi átt þátt í því að repúblikanar misstu meirihlutann í báðum deildum þingsins.
Massie lætur sjálfur af þingmennsku eftir að hafa misst þingsæti sitt í kosningunum. Trump kallaði hann „óánægðan, reiðan og sigraðan fyrrverandi þingmann“ og „ALGJÖRAN LÚSER!“
Tvo þriðju atkvæða þarf til sakfellingar
Búist er við atkvæðagreiðslu í fulltrúadeildinni áður en nýkjörnir þingmenn taka sæti í janúar. Repúblikanar halda enn naumum meirihluta í deildinni en þá taka demókratar við með yfirburðameirihluta.
Samþykki meirihluti fulltrúadeildarinnar að ákæra Hegseth þarf tvo þriðju hluta atkvæða í öldungadeildinni til að sakfella hann og víkja honum úr embætti. Erfitt yrði að ná þeim stuðningi, jafnvel eftir að demókratar taka einnig við meirihluta þar í janúar.
Hegseth telur ákærutillögurnar fela í sér árás á verk Trumps og segist fús til að verja þau.
„Ef þeir vilja ræða […]utanríkisstefnu Trumps forseta og árangur hans í þjóðaröryggismálum, þá skulum við gera það. Ég mæti í þá umræðu. Ræðum þann árangur sem ég rakti hér,“ sagði Hegseth.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗

