Skatturinn gerir kröfu í dánarbúið - VIlja fá 600 milljónir sem virðast ekki vera til

Dánarbú Sven-Göran Eriksson, fyrrverandi landsliðsþjálfara Englands, stendur frammi fyrir gríðarlegri skattakröfu frá breskum yfirvöldum.

Samkvæmt The Sun krefst breska skattstofan HMRC þess að dánarbúið greiði 3,5 milljónir punda, jafnvirði rúmlega 600 milljóna íslenskra króna, í ógreidda skatta.

Eriksson lést úr krabbameini í brisi í ágúst 2024, 76 ára að aldri.

Anders Runebjer, lögmaður dánarbúsins, segir hins vegar að ekki séu nægir fjármunir til að greiða skuldina.

„Sven þénaði milljónir en var alltaf of upptekinn af fótbolta og kvennamálum til að halda almennilega utan um fjármálin,“ sagði Runebjer.

Samkvæmt lögmanninum eru um ein milljón punda á Cayman-eyjum og 300 þúsund pund á breskum bankareikningi.

Eriksson er talinn hafa skilið eftir sig skuldir upp á samtals 7,25 milljónir punda.

Svíinn stýrði enska landsliðinu á árunum 2001 til 2006 og þénaði um 25 milljónir punda á þeim tíma.

Bresk skattayfirvöld eru sögð íhuga lögsókn til að endurheimta fjármunina.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅