Orri Steinn til Manchester United?
Manchester United og Tottenham fylgjast með Orra Steini Óskarssyni, fyrirliða íslenska landsliðsins, fyrir janúargluggann, samkvæmt Calciomercato.
Í fréttinni segir að United íhugi að styrkja sóknarlínuna vegna hnémeiðsla Benjamins Šeško. Everton, Brentford og Sunderland eru einnig sögð hafa áhuga.
Real Sociedad mun að sögn miðilsins krefjast tilboðs upp á meira en 20 milljónir evra fyrir Orra, sem er 22 ára, en samningur hans gildir til júní 2030.
Félagið er ekki undir neinum fjárhagslegum þrýstingi að selja hann.
Orri hefur skorað fimm mörk í síðustu sex leikjum sínum með félagsliði sínu í efstu deild Spánar og í Evrópudeildinni. Hann hefur einnig skorað 12 mörk í 22 A-landsleikjum fyrir Ísland.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗