Vill lengri skilarétt og niðurfellingu stimpilgjalda
Eins og mbl.is greindi frá í morgun felur endurkaupaáætlun fasteignafélagsins Þórkötlu í sér að Grindvíkingum bjóðist að kaupa fasteignir til baka á sama verði og félagið greiddi fyrir þær. Kaupendur fá allt að þriggja ára skilarétt. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Ingveldur Anna Sigurðardóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, vill að skoðað verði hvort lengja megi fyrirhugaðan þriggja ára skilarétt við endurkaup Grindvíkinga á húsnæði.
Þá telur hún sanngjarnt að fella niður stimpilgjöld þegar fólk kaupir húsin sín aftur og spyr hvort lögbundinn forkaupsréttur geti haldist ári lengur.
Þetta kom fram í ræðu hennar undir liðnum störf þingsins á Alþingi í dag. Hún lagði áherslu á að óvissa vegna eldsumbrotanna væri enn til staðar og að Grindvíkingar yrðu að fá að snúa heim á eigin forsendum.
„Það er gríðarlega mikilvægt að fólk verði ekki sett í þá stöðu að rífa fjölskylduna aftur upp með rótum og setja allt undir á meðan atburðir eru enn þá í gangi,“ sagði Ingveldur Anna.
Ingveldur Anna Sigurðardóttir þingmaður Ingveldur Anna sagði mikilvægt að vanda til endurreisnar bæjarins og hlusta á íbúana og bæjarstjórnina. mbl.is/Karítas
Þrjú ár séu fljót að líða
Eins og mbl.is greindi frá í morgun felur endurkaupaáætlun fasteignafélagsins Þórkötlu í sér að Grindvíkingum bjóðist að kaupa fasteignir til baka á sama verði og félagið greiddi fyrir þær. Kaupendur fá allt að þriggja ára skilarétt.
Áætlunin verður kynnt á íbúafundi í Grindavík á morgun.
Ingveldur Anna sagði áætlunina fela í sér þrjár leiðir: endurkaup sem byggðust á kaupleigu, að eign væri tekin frá og leigu á íbúðum í fjölbýlishúsum á markaðskjörum.
Hún taldi ástæðu til að skoða hvort skilarétturinn gæti gilt lengur vegna óvissunnar sem enn ríkti.
„En þrjú ár eru ansi fljót að líða og því er vert að skoða hvort hægt sé að lengja í þessu tímabili. Fólk verður að fá að koma aftur til Grindavíkur á sínum eigin forsendum og aðlagast samfélaginu aftur.“
Sanngjarnt að fella niður stimpilgjöld
Ingveldur Anna vék einnig að fyrirhugaðri niðurfellingu lögbundins forkaupsréttar og spurði hvers vegna hann gæti ekki haldist ári lengur.
Þá sagði hún sanngjarnt að fella niður stimpilgjöld við endurkaup fólks á húsum sínum, enda hefðu Grindvíkingar ekki sjálfir valið að flytja úr bænum.
Hún benti á að yfir þúsund manns störfuðu daglega í Grindavík. Þar byggi einnig fólk og börn væru farin í skóla. Þótt bærinn væri opinn væri hann enn á óvissustigi og landris héldi áfram.
Síðasta eldgosi á Sundhnúksgígaröðinni lauk 5. ágúst í fyrra. Samkvæmt nýjasta stöðumati Veðurstofu Íslands mælist enn landris við Svartsengi og engin gögn benda til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka.
Ingveldur Anna sagði mikilvægt að vanda til endurreisnar bæjarins og hlusta á íbúana og bæjarstjórnina.
„Það er til mikils að vinna að endurreisn Grindavíkur og því er mikilvægt að vel sé að verki staðið og hlustað verði á Grindvíkinga og bæjarstjórn sveitarfélagsins.“
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
