Sjaldséður ljósberi úr Suðurhöfum

Silfurpolli, eða Polymetme corythaeola, er af ættbálki ljósbera, silfurlitaður með svarta enda á sporðugga og tvær raðir ljósfæra á bolnum sem svo verða að einni röð á stirtlunni. Ljósmynd/Hafró/Svanhildur Egilsdóttir

Sjaldséð tegund veiddist í nýafstöðnu haustralli Hafrannsóknastofnunar. Um er að ræða fisk sem nefnist silfurpolli og ber fræðiheitið Polymetme corythaeola.

Á vef Hafró kemur fram að í rallinu hafi verið togað með botnvörpu á 370 stöðum allt í kringum landið og svo allur afli rannsakaður.

Silfurpollinn, sem sagður er frekar lítill fiskur, en þó allt að 26 sentímetrar á lengd, fékkst á einum togstaðnum djúpt suður af Reykjanestá á rúmlega 500 metra dýpi.

Ljósberi úr Suðurhöfum

„Hann er silfurlitaður eins og nafnið gefur til kynna, með svarta enda á sporðugga. Silfurpolli tilheyrir ættbálki ljósbera, er með tvær raðir ljósfæra á bol sem verða að einni röð á stirtlu.“

Á vef Hafró er vitnað í fiskabók Gunnars Jónssonar og Jónbjörns Pálssonar, sem kom út árið 2013, en þar segir frá eina silfurpollanum sem veiðst hafði fram að þeim tíma, suðvestur af Surtsey árið 2007.

„Árið 2013 fengust tveir fiskar í marsralli, í haustralli 2015 fékkst einn silfurpolli og árið 2026 tveir, annar í júlí og hinn í haustrallinu í október.“

Fram kemur að í nýlegri grein sem fjallar um nýjan fundarstað silfurpolla í Miðjarðarhafi komi fram að breytt útbreiðsla tegundarinnar sé rakin til hlýnunar sjávar í Norður-Atlantshafi.

„Einnig kemur þar fram að silfurpolli fannst fyrst árið 1966 við suðurströnd Portúgals en 30 árum síðar var hann orðin algeng tegund.“

Í færslu Hafró er áréttað að ekki sé auðvelt að spá fyrir um hvort silfurpolla muni fjölga hér við land líkt og við Portúgal.

„En áhugavert verður að fylgjast með framvindu tegundarinnar,“ segir þar.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅