Guðmundur Ingi biðst afsökunar

Guðmundur Ingi Kristinsson, þingmaður utan flokka.

Guðmundur Ingi Kristinsson, þingmaður utan flokka. mbl.is/Eyþór

Guðmundur Ingi Kristinsson, þingmaður utan þingflokka, bað starfsfólk Tryggingastofnunar afsökunar á fyrri ummælum sínum í ræðu á Alþingi í dag. Hann gagnrýndi þó áfram almannatryggingakerfið og lagði áherslu á ábyrgð þingmanna á að breyta lögunum.

„Ég ætla að byrja á því að biðja starfsfólk Tryggingastofnunar afsökunar á ummælum mínum hér í þingsal fyrir ekki svo löngu,“ sagði Guðmundur Ingi undir liðnum störf þingsins.

Afsökunarbeiðnin kemur í kjölfar ummæla hans á Alþingi 3. nóvember, þegar hann sakaði Tryggingastofnun meðal annars um að veita rangar upplýsingar og sýna fólki fordóma. Stofnunin hafnaði gagnrýninni í skriflegum svörum við fyrirspurnum Mannlífs.

Sagði einkunn fyrir viðmót góða

Guðmundur Ingi vísaði til umfjöllunar Mannlífs um svör Tryggingastofnunar. Þar kom fram að starfsfólk legði sig fram um að veita góða þjónustu, tryggja jafnræði og vandaða málsmeðferð og starfa samkvæmt lögum.

Samkvæmt svörum stofnunarinnar hefur viðmót starfsfólks fengið einkunnina 4,3 af fimm mögulegum í þjónustukönnunum á þessu ári. Guðmundur Ingi sagði það góða einkunn.

Hann benti þó á að í svörunum hefði ekki komið fram hvort stofnuninni hefðu borist kvartanir vegna fordóma eða óviðeigandi framkomu starfsfólks, þótt sérstaklega hefði verið spurt um það.

Mikilvægt að leiðbeina fólki

Guðmundur Ingi lagði áherslu á að Tryggingastofnun bæri að leiðbeina fólki sem leitaði til hennar. Hann sagðist sjálfur aðstoða fólk sem ætti erfitt með að nýta rafræna þjónustu stofnunarinnar.

Hann nefndi fólk sem kæmist ekki inn á sínar síður, hefði ekki tölvukunnáttu eða netfang. Í sumum tilvikum væri um mjög veikt fólk að ræða.

„Það er þetta sem við þurfum að taka á og við líka hér í þingsal, við þurfum að breyta lögunum,“ sagði hann.

Guðmundur Ingi hefur áður gagnrýnt upplýsingagjöf Tryggingastofnunar. Eins og mbl.is fjallaði um í október gerði hann þá athugasemdir við innheimtubréf til eldra fólks sem misst hefði maka og að því væri vísað á Ísland.is til að leita upplýsinga.

Ábyrgðin liggi hjá Alþingi

Guðmundur Ingi sagði jafnframt margar greiðslur Tryggingastofnunar rangar og taldi ástæðu til að kanna hvað lægi þar að baki. Hann nefndi þó mismunandi tölur í því samhengi án þess að skýra nánar við hvað væri átt.

Hann sagði þingmenn bera ábyrgð á lagaumhverfinu og gagnrýndi að almannatryggingalög hefðu verið „stagbætt“ í áratugi.

„Það er það sem við þurfum að breyta og við breytum því hér inni.“

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅