Afþökkuðu K-vítamínsprautu þegar dóttir þeirra kom í heiminn en sáu sárlega eftir því 11 dögum síðar

Pressan

Þriðjudaginn 10. nóvember 2026 15:08

Myndin er úr safni og tengist efni fréttarinnar ekki með beinum hætti/Pexels

Læknar víða um heim takast nú á við afleiðingar þess að fólk er farið að tortryggja bóluefni og aðrar fyrirbyggjandi læknismeðferðir sem áður þóttu sjálfsagðar. Fyrst var það umræðan um að bóluefni gæti valdið einhverfu, en þá umræðu má rekja til rannsóknar sem birtist árið 1998 eftir þáverandi lækninn Andrew Wakefield. Rannsóknin reyndist fölsuð. Wakefield hafði skáldað og hagrætt gögnum til að ná fram niðurstöðunni sem hann vildi og greindi ekki frá hagsmunaárekstrum sem fólust meðal annars í fjármagni sem hann hafði þegið frá lögmönnum sem stóðu í málaferlum við framleiðendur bóluefna.

Rannsóknin var afturkölluð árið 2010 og Wakefield var sviptur læknaleyfinu en skaðinn var skeður. Foreldrar víða um heim fóru að afþakka bólusetningar af ótta við einhverfu. Síðan kom COVID-19 og umræðan um bóluefni náði nýjum hæðum og tortryggnin sömuleiðis. Afleiðingarnar eru þegar farnar að birtast og sem dæmi má nefna að rúmlega fimm þúsund hafa greinst með mislinga í Bandaríkjunum ár, sem er mesti fjöldi árlegra tilvika síðustu 35 árin.

Tortryggnin nær ekki bara til bóluefna heldur einnig til K-vítamíns sem nýfædd börn eru sprautuð með til að koma í veg fyrir alvarlegar blæðingar. Ekki er ofsögum sagt að þessar sprautur geti verið lífsnauðsynlegar. Það vita hjónin Stephanie og Eric Biesenbach nú manna mest eftir að þau misstu dóttur sína, Gwen, aðeins 11 daga gamla í ágúst árið 2023. Þau deila sögu sinni með ProPublica.

Ákvað að nota frekar dropa

Hjónin áttu fyrir tvö börn sem bæði höfðu fengið K-vítamínsprautu við fæðingu. Með tímanum fóru hjónin þó að vantreysta læknavísindunum, sérstaklega eftir að sonur þeirra greindist með einhverfu sem þau tengdu við bólusetningar sem hann fékk við tveggja ára aldur.

Stephanie vissi að K-vítamín væri nauðsynlegt. Hún fékk bækling frá ljósmóður sinni þar sem beinum orðum var tekið fram að skortur á K-vítamíni gæti valdið fyrirvaralausri blæðingu hjá ungabörnum og að betra væri að sprauta börn með vítamíninu en að treysta á annars konar vítamíngjöf sem ekki væri eins áreiðanleg. Eftir að hafa gert sína eigin rannsókn ákvað Stephanie að afþakka sprautuna og gefa dóttur sinni K-vítamíndropa í staðinn. Hún viðurkennir við blaðamann að hún muni samt ekki á hvaða heimildum hún byggði þá ákvörðun. Hún viðurkennir eins að hafa ekki borið þessa ákvörðun undir móður sína, sem er hjúkrunarfræðingur, því hún veit hvað mamma hennar hefði sagt - sprautan væri nauðsynleg. 

Óstöðvandi blæðing

Gwen litla kom í heiminn á heimili hjónanna og virtist fullkomlega heilbrigð og hraust. Eftir að stubbur naflastrengsins losnaði af stúlkunni byrjaði að blæða og það hætti ekki. Það blæddi í gegnum sárabindi, bleyjur og föt. Foreldrunum varð ekki um sel og leituðu á bráðamóttöku. Þar tók á móti þeim læknir, Nicole Malouf, sem taldi ástandið ekki alvarlegt. Hér væri um að ræða blæðingu frá nafla og það yrði leikur einn að stöðva hana. Malouf tók eftir því í sjúkraskýrslu að foreldrar höfðu afþakkað vítamínsprautuna. Hún reyndi ýmsar leiðir til að stöðva blæðinguna en ekkert gekk. Eftir nokkrar klukkustundir ákvað hún að senda Gwen á annað sjúkrahús sem var með starfsfólk sérhæft í bráðalækningum ungbarna. Tvær klukkustundir liðu áður en sjúkrabíll kom til að sækja stúlkuna.

Það fyrsta sem sjúkraliðar vildu vita var hvort Gwen hefði fengið K-vítamínsprautu. Það hafði hún ekki fengið og Stephanie segir að bráðamóttakan hafi ekki átt slíka sprautu til. Sjúkraliðar sprautuðu Gwen og var hún svo flutt á næsta sjúkrahús en þegar þangað var komið fór hún í hjartastopp. Endurlífgunartilraunir báru árangur en tveimur tímum síðar stöðvaðist litla hjartað aftur. Stúlkan hafði misst of mikið blóð. Gwen litla var dáin.

Ráðið gegn því að höfða mál

Foreldrarnir telja að það hefði verið hægt að bjarga henni hefði hún strax fengið K-vítamínsprautu og ef sjúkrabíllinn hefði verið fyrr á ferðinni. Þau ákváðu að höfða mál gegn lækninum en var svo ráðið gegn því eftir sérfræðimat sem komst að þeirri niðurstöðu að dánarorsök hafi fyrst og fremst verið skortur á K-vítamíni og að hann mætti fyrst og fremst rekja til þess að foreldrarnir afþökkuðu sprautuna. Malouf þurfti þó að sæta agaviðurlögum og gangast undir sérstakt námskeið um læknismeðferð ungbarna. Hún lýsir því við ProPublica að málið ásæki hana en hún er þó sannfærð um að það hefði ekki bjargað Gwen að fá K-vítamín strax við komuna á bráðamóttökuna. Það taki vítamínið um 10-12 klukkustundir að hafa áhrif og því hefði það ekki bjargað stúlkunni. Hún bendir á að blæðing vegna K-vítamínsskorts hafi nánast heyrt sögunni til og því ekki farið mikið fyrir kennslu á réttu viðbrögðunum í læknanáminu.

Stephanie og Eric segjast enn vantreysta læknavísindum en ef þau gætu ferðast aftur í tímann þá myndu þau þiggja sprautuna. Þau hafa síðan eignast tvær dætur til viðbótar og báðar fengu þær K-vítamínsprautu í fæðingunni.

Samkvæmt nýlegri rannsókn fjölgaði blæðingum tengdum K-vítamínskort í Bandaríkjunum um 347% á árunum 2017-2025. 

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅