Fá nú að halda vinnu sinni hjá borginni

Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir segir að breytt afstaða ríkisins ráði því að fólk haldi vinnunni. Samsett mynd/mbl.is/Karítas

Flest starfsfólk alþjóðateymis Reykjavíkurborgar sem áður hafði fengið uppsögn gæti fengið að halda áfram störfum við móttöku flóttafólks.

Velferðarráð borgarinnar hefur samþykkt tillögu um að framlengja samning borgarinnar við ríkið um eitt ár, en gert er ráð fyrir að þjónustan nái til færri einstaklinga en samkvæmt núgildandi samningi.

Þetta kemur fram í gögnum frá fundi velferðarráðs 4. nóvember. 22 starfsmenn voru í alþjóðateymi sem fékk uppsögn í tengslum við niðurskurðaraðgerðir Reykjavíkurborgar.

Algjörlega háð ríkinu  

Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, er formaður velferðarráðs. Að sögn hennar er fólkinu sem sagt var upp enn á uppsagnarfresti. 

„Ríkið var með þjónustusamning um þessi mál við okkur en hugðist ekki framlengja hann og fyrir vikið var þessu fólki sagt upp. Ríkið endurmat svo hlutina og vildi gera nýjan þjónustusamning og þess vegna er þessi breytta afstaða. Eðli þessa verkefnis er þannig að fjármögnunin er algjörlega háð framlagi ríkisins. Borgin hefur í sjálfu sér litla stjórn á þessu verkefni að öðru leyti en því að fara eftir því sem ríkið vill gera,“ segir Ragnhildur Alda. 

Samningur til ársloka 2027

Tillagan gerir ráð fyrir að samningurinn um samræmda móttöku flóttafólks gildi til ársloka 2027 og taki til þjónustu við 1.500 einstaklinga, samanborið við 1.800 samkvæmt núgildandi samningi.

Samkvæmt greinargerð með tillögunni voru 1.363 einstaklingar í samræmdri móttöku hjá Reykjavíkurborg þann 4. október síðastliðinn, þar af 257 börn. Alls hefur borgin veitt 5.510 einstaklingum þjónustu á grundvelli samræmdrar móttöku frá ársbyrjun 2021.

Vilja halda í reynslu starfsfólksins

Í bókun fulltrúa Samfylkingarinnar og Vinstrisins er því fagnað að flest starfsfólk alþjóðateymisins sem áður hafði fengið uppsögn fái nú tækifæri til að halda áfram störfum við verkefnið.

Fulltrúarnir segja mikilvæga þekkingu og reynslu felast í starfsfólkinu sem skipti máli fyrir gæði þjónustunnar og samfellu í stuðningi við flóttafólk.

Miðflokkurinn lagðist gegn framlengingu

Tillagan var samþykkt með sex atkvæðum gegn einu og vísað til borgarráðs.

Fulltrúi Miðflokksins, Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir, lagðist gegn framlengingunni og sagði Reykjavíkurborg þegar komna yfir þolmörk í móttöku flóttafólks. Í bókun flokksins var kallað eftir frekari greiningu á fjárhagslegum áhrifum samningsins á félagsþjónustu, húsnæðismál, skólaþjónustu og stjórnsýslu borgarinnar.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅