Arsenal að klára samninga við þrjá algjöra lykilmenn
Arsenal er sagt vera á lokametrunum í viðræðum við þrjá lykilmenn liðsins um nýja samninga.
Samkvæmt Teamtalk hefur félagið náð miklum árangri í samningaviðræðum við Martin Ødegaard, Jurriën Timber og Declan Rice.
Búist er við að allir þrír skrifi undir nýja samninga áður en félagaskiptaglugginn opnar í janúar.
Ødegaard, sem er 27 ára, er fyrirliði Arsenal og einn mikilvægasti leikmaður liðsins.
Timber, 25 ára, hefur gegnt mikilvægu hlutverki í varnarlínunni á meðan Rice, 27 ára, er lykilmaður á miðjunni.
Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal, mun án efa fagna tíðindunum enda mikilvægt að tryggja framtíð þessara leikmanna.
Ekki hefur enn verið tilkynnt um endanlegt samkomulag en allt stefnir í að Arsenal takist að halda öllum þremur til lengri tíma.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗