Haukur vill þrjár milljónir frá leigubílstjóranum sem barði hann með spýtu

Ágúst Borgþór Sverrisson

Þriðjudaginn 10. nóvember 2026 15:00

Haukur Ægir Hauksson í Héraðsdómi Reykjavíkur. Mynd: DV/KSJ

Mohamad Weti, sextugur maður frá Sýrlandi, sem hefur búið á Íslandi síðan árið 2016, hefur verið ákærður fyrir stórfellda líkamsárás. Er honum gefið að sök að hafa aðfaranótt 11. mars árið 2023, á bílastæði við Bjölluvað 13 í Reykjavík, slegið Hauk Ægi Hauksson með 53 cm tréspýtu í höfuðið með þeim afleiðingum að hann hlaut kúlu með rispu hægra megin á höfði.

Málið er afar sérstakt og hefur verið mikið í fjölmiðlum, en Haukur var áður ákærður fyrir tilraun til manndráps gagnvart Mohamad Weti þetta sama kvöld. Hann var sýknaður af þeirri ákæru en sakfelldur fyrir líkamsárás og dæmdur í eins árs fangelsi. 

Sjá einnig: Haukur ákærður fyrir manndrápstilraun gegn leigubílstjóra sem braut á ungri stúlku

Ekki nóg með það. Vegna þessara sömu atvika var Mohamad Weti sakfelldur fyrir kynferðisbrot gegn dóttur þáverandi kærustu Hauks, en stúlkan var farþegi í bíl Mohamads er hann braut gegn henni. Var hann dæmdur í 10 mánaða fangelsi fyrir það brot. Til átaka kom á milli Hauks og Mohamads í kjölfar ásakana stúlkunnar en hvor sakaði hinn um að hafa átt upptökin og ráðist á sig. 

Sjá einnig: Dómur fallinn yfir Hauki Ægi

Í ákærunni gegn Mohamad Weti er birt einkaréttarkrafa af hálfu Hauks sem fer fram á miskabætur að fjárhæð þrjár milljónir króna. 

Málið verður þingfest við Héraðsdóm Reykjaness á morgun, þann 11. nóvember. 

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅