Villa olli töfum í greiðslumiðlun hérlendis

Reiknistofa bankanna er mikilvægt innviðafyrirtæki í fjármálaþjónustu hér á landi.

Reiknistofa bankanna er mikilvægt innviðafyrirtæki í fjármálaþjónustu hér á landi. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Hnökrar urðu í viðhaldsaðgerðum hjá Reiknistofu bankanna sem olli því að tafir urðu á greiðslumiðlun hérlendis. 

Þetta staðfestir Ragnhildur Geirsdóttir, forstjóri Reiknistofu bankanna, í samtali við mbl.is. Villumeldingar komu meðal annars upp í heimabönkum.

Allir lögðust á eitt

Í heimabanka Landsbankans sagði að tafir væru á að staðfesting á að greiðslur bærust og voru viðskiptavinir bankans beðnir um að endurtaka ekki millifærslur eða greiðslur reikninga á meðan á þessu stóð.

Villan gerði vart við sig í um hálftíma samkvæmt Ragnhildi og var allt komið í réttar horfur upp úr klukkan tvö í dag. Þá bætir hún við að allir hafi lagst á eitt við að koma þessu í lag.

Ragnhildur Geirsdóttir, forstjóri Reiknistofu bankanna.

„Þetta var regluleg viðhaldsaðgerð sem fór ekki eins vel og hún átti að gera og olli truflun í greiðslumiðlun og greiðslukröfum,“ segir hún. 

Þá bætir hún við að vandamálið hafi einskorðast við Reiknistofuna og ekki væri um utanaðkomandi áhrif að ræða á starfsemi Reiknistofunnar.

Villumelding sem kom upp í heimabanka Landsbankans.

Villumelding sem kom upp í heimabanka Landsbankans. Ljósmynd/Aðsend

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅