Guðjón Ragnar Jónasson skrifar: Skólinn er hornsteinn í héraði
Byggðamál og efling byggðar hafa mér löngum verið hugleikin. Fyrir hartnær hundrað árum voru reistir héraðsskólar þar sem alþýðu þessa lands bauðst að ganga menntaveginn. Efling framhaldsskóla á landsbyggðinni er að mínu mati eitt stærsta hagsmuna- og byggðamál á Íslandi. Framhaldsskólarnir úti á landi þjóna ekki aðeins því hlutverki að mennta ungt fólk, heldur eru þeir mikilvægar menningar- og nýsköpunarstofnanir í sínum byggðarlögum og því má segja að þeir séu hornsteinar í héraði.
Gróskumikið skólastarf eflir byggðirnar og veitir þeim tækifæri til vaxtar og viðgangs. Skólinn er samfélag. Munum að skólinn er ekki aðeins stofnun þar sem farið er yfir námsefni, heldur tengist hann lýðræðis- og alþýðumenntun þar sem skólastarfið á að búa einstaklinga undir þátttöku í hinu stóra samfélagi.
Mikil áhersla hefur á umliðnum árum verið lögð á eflingu starfsmenntunar og í þeim efnum má landsbyggðin ekki verða eftirbátur. Framhaldsskólar á landsbyggðinni þurfa að fá tækifæri til að halda úti fámennum námshópum. Það hefur styrkt hinar dreifðu byggðir út um land að nemendur eigi aðgang að námi í námunda við heimabyggð.
Á tímum hraðra tækniframfara með gervigreind og því sem henni fylgir er efling starfsnáms sérstaklega mikilvæg. Í þessu nýja tæknilandslagi þarf skólinn að verða nokkurs konar tæknimiðstöð samfélagsins og þannig varðar hann leiðina að nýrri alþýðumenntun. Lítill framhaldsskóli getur aukið mikilvægi sitt í heimabyggð með því að verða brúarsmiður milli nýrrar tækni og staðbundins atvinnulífs. Það getur hann gert með samstarfi við nærumhverfið þar sem innan skólans geta ungir og aldnir nýtt sér gervigreind til að vinna að raunverulegum nýsköpunarverkefnum með fyrirtækjum á staðnum, t.d. með greiningu á gögnum í ferðaþjónustu, sjávarútvegi eða landbúnaði.
Það er minn draumur að skólinn minn geti boðið upp á námskeið í gervigreindarlæsi fyrir íbúa og fyrirtæki á svæðinu og þannig styrkt hlutverk sitt sem miðstöð alþýðufræðslu. Það er mikilvægt á tímum örra samfélagsbreytinga að framhaldsskólum á landsbyggðinni verði gert kleift að vaxa og dafna, og rækja þannig hlutverk sitt sem miðstöðvar mennta. Þannig verða þeir þeir hornsteinar í héruðum sem til þarf til að styrkja inniviði samfélaganna. Skólinn og samskiptin sem honum tengjast eru ætíð mikilvæg, og það sérstaklega í smærri samfélögum. Munum að menntun og mennska eru einmitt þess konar fjársjóðir sem „hvorki mölur né ryð fær eytt.“
Höfundur er skólameistari framhaldsskóla Austur-Skaftafellssýslu.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗