Hvernig nær maður að elska sjálfan sig á ný?
Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 10. nóvember 2026 14:43
Elísabet Thoroddsen og bók hennar Lesbíur óskast.
Þegar Hlín vaknar skelþunn á miðjum laugardegi rifjast upp fyrir henni að hún á von á fimm bláókunnugum lesbíum í mat um kvöldið. Hlín er að skilja við eiginmann sinn og nýflutt í litla kjallaraholu. Hún kann ekki að elda, íbúðin er í rúst, hún efast um allar ákvarðanir sem hún hefur tekið í lífinu og svo kann hún ekki að tala við lesbíur.
Bókin Lesbíur óskast er frumraun Elísabetar Thoroddsen í skáldsögum fyrir fullorðna, en áður hefur hún gefið frá sér ungmennabækur og barnabók, sem hlotið hafa góðar viðtökur. Líkt og nafn bókarinnar bendir til fjallar hún um einstaklinga sem eru hinsegin, skrifuð af rithöfundi sem er hinsegin. Og þó ég sé ekki alveg með það á hreinu þá hygg ég að slíkar skáldsögur fyrir fullorðna skrifaðar á íslensku séu ekki margar. Það er því vert að hrósa Elísabetu fyrir bókina, sem hún hefur greint frá að hún hafi verið lengi að koma frá sér.
Bókin hefst þar sem Hlín býr ein í kjallaraíbúð þar sem kassarnir fylla enn öll gólf og hún er engan veginn búin að hafa dug til að koma sér fyrir, 38 ára, nýlega skilin við eiginmanninn Snorra sem hún kynntist á menntaskólaárunum. Hann býr enn í flottu Sigvaldahöllinni þeirra og börnin þeirra tvö hjá honum. Ástæða skilnaðarins: Hlín heldur að hún sé lesbía. Snorri skilur ekki neitt í neinu, er ekki sáttur og vill sína konu til baka þar sem hann getur stjórnað henni og lífi þeirra líkt og áður.
Vinkona Hlínar kemur í heimsókn til hennar og eftir nokkur glös finnst þeim tilvalið að skrá Hlín á Tinder og bjóða nokkrum lesbíum í matarboð. Fimm þiggja boðið og kvöldið eftir banka fimm ókunnugar konur upp á hjá Hlín. Matarboðið er bæði fyndið og fáránlegt eins og oft í slíkum óvæntum aðstæðum. Lesandinn fylgir Hlín þar sem hún mátar sig við lesbíuheiminn, hefur samband við konu og horfist í augu við eigin fordóma. Hlín reynir að koma sjálfri sér, lífinu og heimili á réttan kjöl, á sama tíma og eldri áföll banka upp á og hún fer að skoða fortíð sína í nýju ljósi. Samhliða því sem Hlín skoðar fortíð og fyrri sambönd tekur kvíðinn yfir og skömmin flýtur upp á yfirborðið þar til Hlín þarf að endurmeta heilsuna.
Þegar lesið er um persónur þá vill maður tengja við þær, finna til með þeim og sjá þeim vegna vel, eða þegar um einhvern illgjarnan er að ræða sjá hann fá makleg málagjöld. Mig langaði til að sjá Hlín finna sjálfstraustið og eigin rödd, þó mig hafi af og til líka langað til að hrista hana til fyrir hversu uppburðarlítil og ósjálfbjarga hún er, eins og þegar sturtan bilar. Ráðrík móðir hennar kemur við sögu, alin upp af kynslóðinni þar allt snerist um að vera dugleg og minni áhersla lögð á að sýna tilfinningar. Einnig hafði ég nokkrar áhyggjur af því að börn Hlínar myndu þurfa á sálfræðingi að halda því ekki hafði móðirin mikinn burð til að sinna þeim, en þar ratast allt á betri veg um leið og líður á söguna.
Bókin kemur inn á hið mannlega sem við eigum öll sameiginlegt, þörfina fyrir að tilheyra og fá viðurkenningu annarra, elska einhvern og fá ástina endurgoldna, en þó fyrst og fremst að elska sjálfan sig með öllum þeim göllum og kostum sem mann prýða. Elísabet skrifar um kvíða, sektarkennd og skömm, en á sama tíma um væntingar Hlínar til sjálfrar sín og framtíðarinnar. Undir öllu hvílir svo vonin. Allt eru þetta tilfinningar sem við finnum og höfum öll fundið fyrir. Frásögnin er skrifuð með einlægum og þroskuðum hætti, en húmorinn er ekki langt undan.
Elísabet Thoroddsen
- Stjörnur: 4 stjörnur
- Skáldsaga
- Höfundur: Elísabet Thoroddsen
- Bókabeitan, 2026
- Innbundin, 256 bls.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗