Marentza 76 ára í dag: „Aldur er afstæður“
Marentza Poulsen fagnar 76 ára afmæli í dag og býður fjölskyldunni í kjötsúpu og marenstertu með myntusúkkulaði. Í tilefni dagsins rifjum við upp uppskriftir smurbrauðsdrottningarinnar. Árni Sæberg tók þessa ljósmynd af vinkonunum Marentzu og Lovísu fyrir nokkrum árum. Hún ber heitið „Kaffikonur á Kjarvalsstöðum“. mbl.is/Árni Sæberg
Marentza Poulsen á 76 ára afmæli í dag og heldur upp á daginn með fjölskyldunni, sem hún býður í kjötsúpu og marenstertu með myntusúkkulaði. Smurbrauðsdrottningin stendur þó sína vakt í vinnunni áður en gestirnir mæta. Undirbúningurinn fór því fram í gær, enda veit hún að kjötsúpa verður bara betri daginn eftir.
„Það er bara svo frábært,“ segir Marentza þegar hún er spurð hvernig sé að eiga afmæli.
„Barnabarnið mitt kom og söng fyrir mig í morgun og færði mér afmælisgjöf. Og svo kom ég hérna í vinnuna, af því ég þarf að vinna í dag, og það var tekið vel á móti mér.“
Ida Davidsen og Marentza Poulsen árið 2003. Á jólahlaðborðum þeirra á Hótel Borg og síðar Hótel Loftleiðum voru sömu kræsingar á boðstólum og á veitingastað Idu í Kaupmannahöfn. mbl.is/Sverrir Vilhelmsson
Afmælisbarnið ætlar að vinna til klukkan fimm og taka á móti gestum klukkan sjö. Þá kemur sér vel að vera búin að leggja á borð, elda súpuna og baka kökuna.
„Það er allt hægt,“ segir hún.
Marentza og Ida Davidsen rötuðu oft á síður Morgunblaðsins hér á árum áður. Þessi mynd var tekin árið 2000, en þá höfðu þær í áratug staðið saman að dönskum jólahlaðborðum á Íslandi, fyrst á Hótel Borg og síðar á Hótel Loftleiðum. mbl.is/Jón Svavarsson
Kjötsúpa og marensterta á afmælisborðinu
Þótt Marentza kunni öðrum betur að bera fram glæsilegar kræsingar verður heimilislegt yfir afmælisveislunni.
„Í gær bjó ég til kjötsúpu af því að ég er að bjóða fjölskyldunni minni í kjötsúpu. Svona vetrarlegt og skemmtilegt.“
Marentza í kokkagallanum árið 2007, þegar hún fagnaði tíu ára afmæli Café Flóru í Grasagarðinum í Laugardal. Ljósmynd/Aðsend
Á eftir verður marensterta með myntusúkkulaði. Hún leggur áherslu á að hafa þetta einfalt þegar vinnudagur og afmælisveisla fara saman. Með undirbúningi kvöldið áður gefst tími fyrir hvort tveggja.
Marentza ásamt Kristínu Eddu, starfsmanni sínum á kaffihúsinu í Grasagarðinum. Myndin birtist í Morgunblaðinu árið 2004, þegar sagt var frá súpum, heimabökuðu brauði og fleiri kræsingum sem Marentza bauð upp á innan um rósir og fuglasöng. mbl.is/Þorvaldur Örn
Aldurinn fær heldur ekkert að flækja málin.
„Mér líður bara vel, aldur er afstæður og ég pæli ekkert í því. Ég bara er eins og ég er og hef alltaf verið.“
Okkar eigin Martha Stewart
Það má færa rök fyrir því að Marentza sé okkar eigin Martha Stewart. Hún kann að gera máltíð að viðburði, hugsar fyrir smáatriðunum og hefur jafn gaman af því að gleðja augað og bragðlaukana. Sjálf orðaði hún ástríðuna svona í viðtali við Morgunblaðið árið 2024:
„Að leggja fallega á borð, bera fram kræsingar og gleðja gestina mína með nærandi og gefandi stundum er ástríða mín.“
Marentza ólst upp í Skopun á Sandey í Færeyjum og flutti til Íslands með fjölskyldu sinni árið 1964, þá fjórtán ára að aldri. Á æskuheimilinu var matur unninn frá grunni og nýting hráefnisins hluti af daglegu lífi. Síðar lærði hún hjá Idu Davidsen í Kaupmannahöfn og smurbrauðið hefur fylgt henni síðan.
Marentza og eiginmaður hennar, Hörður Hilmisson, fögnuðu gullbrúðkaupi 23. október 2023. Myndin birtist þann dag í þættinum Árnað heilla í Morgunblaðinu. Dans, söngur og samvera með fjölskyldu og vinum hafa fylgt þeim í gegnum hjónabandið. Ljósmynd/Aðsend
Uppskriftirnar hennar spanna þó mun meira, allt frá girnilegum dögurðarréttum til fagurlega skreyttra eftirrétta. Í tilefni dagsins rifjum við upp nokkrar af kræsingunum sem hún hefur deilt með lesendum.
Marentza heima hjá sér í jólaskrúða árið 2005, þegar hún deildi uppskrift með lesendum Morgunblaðsins. Ásdís blaðamaður og ljósmyndari tók myndina. mbl.is/Ásdís
Falleg framsetning og einstakur matur
Í glæsilegum páskadögurði Marentzu fengu vöfflurnar nýtt hlutverk. Hún bar focacciavöfflur fram með reyktum laxi, hleyptu eggi og epla- og sellerísalati. Maísvöfflur fengu hins vegar félagsskap avókadó- og kjúklingasalats og voru skreyttar kryddjurtum.
Þessa rétti má vel bera fram við fleiri tilefni en páska, hvort sem boðið er í afmæli eða dögurð um helgi.
Marentza er mikil smekkkona og leggur ávallt mikið upp úr því að leggja fallega á borð og skreyta í takt við tilefnið. mbl.is/Árni Sæberg
Í sama dögurði bauð Marentza upp á karrí- og túrmerikpikkluð djöflaegg sem settu lit á borðið. Sætur endapunktur var ostakaka með sítrónu og limoncello, skreytt gulum rósablöðum.
Falleg framsetning hefur löngum einkennt veisluborðin hennar en samveran er henni ekki síður hugleikin. Eins og hún sagði í viðtali við undirritaða árið 2022:
„Þegar heimilið fyllist þá fyllist hjartað af hamingju.“
„Mér finnst hins vegar mjög skemmtilegt að elda mikinn mat á aðfangadag, jafnvel fimm, sex rétti. Við njótum þess allt kvöldið að borða góðan mat og hafa það huggulegt,“ segir Marentza árið 2009. mbl.is/Heiðar Kristjánsson
Í kvöld fyllist heimilið af fjölskyldunni, kjötsúpan fer á borðið og marenstertan bíður. Við óskum Marentzu innilega til hamingju með daginn og þökkum henni uppskriftirnar og tryggðina við okkur á Morgunblaðinu og mbl.is í gegnum árin.
Marentza hefur í gegnum árin deilt fjölmörgum hátíðarréttum með lesendum Morgunblaðsins. Hér er hún á mynd Ásdísar frá því fyrir jólin 2017. mbl.is/Ásdís
Marentza er þekkt fyrir að baka ljúffengar og fallegar kökur sem í boðið eru á kaffihúsinu hennar Klambra Bistró á Kjarvalsstöðum. mbl.is/Árni Sæberg
Marentza býður ávallt í hátíðarkaffi í tilefni þjóðhátíðardagsins. Þar er íslenski fáninn í fyrirrúmi ásamt girnilegum kræsingum. mbl.is/Kristinn Magnússon
Smurbrauðsdrottningin Marentza er annálaður fagurkeri og leggur mikinn metnað í að gera ljúffengan og góðan mat sem fangar bæði augu og munn. mbl.is/Karítas
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/11/1691120.jpg)












