Segir Sigurð Inga kasta starfsfólki „undir rútuna“
Guðmundur Ari Sigurjónsson, þingmaður Samfylkingarinnar, sakar Sigurð Inga Jóhannsson, þingmann Framsóknarflokksins og fyrrverandi fjármála- og efnahagsráðherra, um að reyna að komast undan ábyrgð á breyttu fyrirkomulagi við val í stjórnir ríkisfyrirtækja.
Sigurður Ingi gagnrýni nú fyrirkomulag sem hann hafi sjálfur mælt fyrir á Alþingi og reyni að varpa ábyrgðinni á embættismenn.
Þetta kom fram í ræðu Guðmundar Ara undir liðnum störf þingsins á Alþingi í dag. Hann segir Sigurð Inga „kasta starfsfólki heils ráðuneytis undir rútuna í fjölmiðlaviðtölum til að fegra eigin hlut.“
Ummælin falla í kjölfar umræðu um starfslok Harðar Arnarsonar sem forstjóra Landsvirkjunar og samskipti stjórnar fyrirtækisins við fjármála- og efnahagsráðuneytið.
Eins og mbl.is hefur fjallað um hafa Sigurður Ingi og Álfheiður Ingadóttir, fyrrverandi stjórnarmaður í Landsvirkjun, gagnrýnt þau samskipti og breytt fyrirkomulag við val stjórnarmanna.
Vísaði til ummæla í Gímaldinu
Guðmundur Ari vísaði til fréttaskýringar Gímaldsins í morgun um lagabreytingu sem fól í sér aðkomu valnefndar að vali stjórnarmanna í Landsvirkjun og öðrum stærri ríkisfyrirtækjum.
Hafði hann eftir Sigurði Inga úr umfjölluninni: „Þetta var áhugamál einhverra embættismanna í ráðuneytinu og þessu var laumað fram hjá mér.“
Guðmundur Ari sagði þessar skýringar ekki samræmast því að Sigurður Ingi hefði sjálfur mælt fyrir breytingunni á Alþingi.
Landsvirkjun sérstaklega nefnd í greinargerðinni
Sigurður Ingi mælti fyrir frumvarpi um niðurlagningu Bankasýslu ríkisins 24. október 2024. Í því var lagt til að valnefnd gerði tillögur um einstaklinga til stjórnarsetu í öðrum stærri ríkisfyrirtækjum, auk fjármálafyrirtækja í ríkiseigu. Í framsöguræðu sinni sagði hann reynsluna af fyrirkomulaginu almennt hafa verið góða.
Guðmundur Ari rifjaði upp þessi ummæli og benti á að Landsvirkjun væri sérstaklega nefnd í greinargerð frumvarpsins meðal fyrirtækja sem breytingin næði til. Frumvarpið var samþykkt á Alþingi 15. nóvember 2024.
Að mati Guðmundar Ara sýndu þinggögnin að Sigurður Ingi hefði gert sér grein fyrir efni breytingarinnar.
„Þegar flett er upp í gögnum Alþingis kemur alveg skýrt fram að hv. þingmaður lagði fram þessa breytingu með galopin augun, mælti fyrir henni og samþykkti hana ásamt öðrum fulltrúum Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins,“ sagði hann.
Krefst þess að þingmenn axli ábyrgð
Guðmundur Ari sagði Sigurð Inga hafa gengið langt í gagnrýni á núverandi ríkisstjórn vegna fyrirkomulags sem hann bæri sjálfur fulla ábyrgð á. Með skýringum sínum reyndi ráðherrann fyrrverandi að komast undan þeirri ábyrgð á kostnað starfsfólks ráðuneytisins.
„Við hljótum að gera þá kröfu í störfum þingsins að þingmenn fari með rétt mál, beri ábyrgð á eigin ákvörðunum og reyni ekki að kasta starfsfólki heils ráðuneytis undir rútuna í fjölmiðlaviðtölum til að fegra eigin hlut.“
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
