Ákærður fyrir að nauðga sjúklingi á Landspítalanum
Manninum er gefið að sök að hafa haft önnur kynferðismök en samræði við konuna án samþykkis hennar. mbl.is/Karítas
Karlmaður hefur verið ákærður fyrir að hafa nauðgað konu sem lá inni á Landspítalanum árið 2024.
Er maðurinn sakaður um að hafa notfært sér að konan var undir áhrifum lyfja og því ófær um að sporna við háttsemi hans.
Meint brot átti sér stað að kvöldi 23. apríl árið 2024, inni á sjúkrastofu á einni af deildum spítalans, að því er fram kemur í ákæru.
Manninum er gefið að sök að hafa haft önnur kynferðismök en samræði við konuna án samþykkis hennar.
Samkvæmt ákærunni setti hann fingur inn í leggöng konunnar, káfaði innan klæða á brjóstum hennar og maga og nuddaði kynfæri hennar.
Brot mannsins er talið varða við 2. mgr. 194. gr. almennra hegningarlaga, sem tekur meðal annars til kynferðisbrota gegn einstaklingum sem geta ekki spornað við verknaðinum.
Þess er krafist að maðurinn verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar.
Konan fer jafnframt fram á þrjár milljónir króna í miskabætur, auk vaxta og málskostnaðar.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗