„Dómari má ekki gefa einhvern magnafslátt“
Helga Vala Helgadóttir, verjandi Írisar Helgu, fór yfir málsvörn hennar í málflutningi í Héraðsdómi Reykjaness í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Helga Vala Helgadóttir, verjandi Írisar Helgu Jónatansdóttur, krafðist sýknu yfir skjólstæðingi sínum við málflutning í Héraðsdómi Reykjaness í dag en vægustu refsingar til vara.
Hún lagði áherslu á að sanna þyrfti hvern þeirra 68 ákæruliða sem málið tekur til og gagnrýndi að ekki hefði verið kannað nægilega vel það sem Íris Helga hefur haldið fram um að fjaraðgangar hefðu verið nýttir til þess að senda skilaboð úr hennar fjarskiptatækjum
Helga sagði að fjöldi ásakana kæmi ekki í stað sannana.
„Dómari má ekki gefa einhvern magnafslátt“ af sönnunarbyrðinni, sagði Helga Vala. Sanna þyrfti að Íris Helga hefði í raun framið þau brot sem henni væru gefin að sök.
Gengst við heimsóknum en neitar refsiverðri háttsemi
Íris Helga neitar í megindráttum sök. Hún gengst þó við tilteknum samskiptum og heimsóknum sem fjallað er um í málinu en telur háttsemina ekki refsiverða.
Í málflutningi verjandans kom fram að Íris Helga viðurkenndi að hafa árið 2022 komið með blómavasa að heimili manns sem hún hafði nýlega „lokið samskiptum“ við. Vasinn hefði brotnað við þær aðstæður sem þar sköpuðust.
Hún viðurkenndi jafnframt að hafa komið til sama manns tveimur dögum síðar og sparkað í dekk á bifreið hans. Þá hefði hún sent honum skilaboð um að hún myndi aldrei tala við hann aftur.
Einnig gengist hún við því að hafa komið að heimili annars manns til að skila eigum dóttur hans og um leið gefið henni föndurdót.
Þá hefði hún komið með afmælisgjöf, döðlugott, að heimili þriðja mannsins og skilið hana þar eftir.
Ekkert af þessu teldi Íris Helga fela í sér refsiverða háttsemi.
Hún viðurkenndi einnig að hafa skrifað skilaboð í eigin nafni um háttsemi annarra hlutaðeigandi. Að hennar sögn var það gert til að svara ásökunum í hennar garð.
Deilir á tengingu við nafnlausa reikninga
Helga Vala sagði Írisi Helgu ekki kannast við að hafa notað þann fjölda nafnlausra reikninga sem saksóknari hefði vísað til í málflutningi sínum. Sanna þyrfti að hún hefði staðið að baki þeim reikningum sem notaðir hefðu verið til að bera út óhróður um menn.
Verjandinn taldi rafræn gögn málsins tengja Írisi Helgu við skilaboð og orðsendingar með óljósum hætti. Þá væri misræmi í tímasetningum í framburði vitna og gögnum lögreglu sem veikti málatilbúnað ákæruvaldsins.
Íris Helga hefði þurft að svara óskýrum sakargiftum sem næðu yfir allt að fjögurra ára tímabil.
Segir mögulegan fjaraðgang ekki nægilega rannsakaðan
Helga Vala sagði Írisi Helgu hafa talið mögulegt að fjaraðgangur að tækjum hennar hefði verið nýttur til að stofna reikninga sem síðan væru tengdir við hana. Sá möguleiki hefði ekki verið kannaður í rannsókn lögreglu fyrr en nýlega.
Samkvæmt málflutningi verjandans hefði í greinargerð verið sagt að ekki hefðu fundist merki um að fjaraðgangur hefði verið nýttur í tveimur tilvikum af þremur. Helga Vala benti hins vegar á að á einni þriggja tölva hefðu fundist merki um að fjaraðgangsforritið TeamViewer hefði á einhverjum tímapunkti haft aðgang að tölvunni.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
