Enn ósamið um fjármögnun Fljótaganga

Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra.

Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra. mbl.is/Eyþór

Ekki liggur fyrir endanleg greining á eiginfjárþörf vegna Fljótaganga og enn á eftir að semja við innviðafélagið Göng og brú um verkefnið.

Hjá fjármála- og efnahagsráðuneytinu liggja ekki heldur fyrir svör um áætlaða greiðslubyrði þess, nauðsynleg veggjöld eða hversu stórum hluta kostnaðar þau eiga að standa undir.

Þetta kemur fram í svari Daða Más Kristóferssonar, fjármála- og efnahagsráðherra, við fyrirspurn Ólafs Adolfssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, um fjármögnun Fljótaganga.

Í samgönguáætlun er stefnt að því að framkvæmdir við göngin hefjist árið 2027. Samkvæmt svarinu er horft til þess að þau geti orðið meðal fyrstu verkefna Ganga og brúar.

Framlag í reiðufé eða tekjuberandi eignum

Í fjárlagafrumvarpi ársins 2027 er lagt til að heimilað verði að auka hlutafé Ganga og brúar til að efla fjárfestingargetu félagsins.

Til skoðunar kemur að auka hlutafé þess svo það hafi fjárhagslega burði til að taka að sér fjármögnun og framkvæmd Fljótaganga og hraða framvindu verkefnisins. Hlutafjáraukningin gæti verið í formi reiðufjár sem nemur hluta stofnkostnaðar eða tekjuberandi eigna.

Horft er til þess að framlag ríkissjóðs verði með þessum hætti, annaðhvort í einu lagi eða þannig að félagið geti dregið á það yfir tiltekið tímabil. Ekki kemur fram hversu hátt framlagið þyrfti að vera.

Innviðaráðherra þarf að semja við félagið um uppbyggingu og rekstur samgönguverkefna sem það tekur að sér. Samningurinn er jafnframt háður samþykki fjármála- og efnahagsráðherra. Ekki hefur verið gengið frá slíkum samningi vegna Fljótaganga.

Ólafur Adolfsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.

Viljayfirlýsing undirrituð í september

Eins og mbl.is greindi frá 7. september var þá til skoðunar að auka hlutafé félagsins vegna Fljótaganga. Fram kom að stefnt væri að upphafi framkvæmda á seinni hluta ársins 2027. Göngin eiga að tengja Siglufjörð og Fljót og verða 5,3 kílómetrar að lengd.

Þá greindi mbl.is frá því 17. september að innviðaráðuneytið og Göng og brú hefðu undirritað viljayfirlýsingu um uppbyggingu samgöngumannvirkja. Hún var sögð fyrsta skrefið í að fela félaginu formlega ábyrgð á verkefnum á borð við Fljótagöng, Ölfusárbrú og Sundabraut.

Ekki skýrt hvort tekjur annarra mannvirkja verði nýttar

Ólafur spurði meðal annars hversu há veggjöld þyrftu að vera, hvaða umferðarspá og mat á greiðsluvilja lægju að baki tekjuáætlun og hversu stórum hluta kostnaðar veggjöld ættu að standa undir.

Í svarinu segir að þar sem ekki hafi verið samið við félagið um verkefnið liggi ekki fyrir svör við þessum spurningum hjá ráðuneytinu.

Einnig var spurt hvort veggjöld af Sundabraut, Ölfusárbrú eða öðrum mannvirkjum yrðu nýtt til að fjármagna Fljótagöng. Því er ekki svarað beint. Vísað er til lagaheimilda félagsins til að innheimta veggjöld sem standi undir kostnaði við vegi eða skilgreint samgöngukerfi.

Ríkið ber áhættu sem eigandi

Við undirbúning félagsins hafa verið unnar sviðsmyndir sem byggjast á því að það uppfylli markaðspróf Hagstofunnar og geti fjármagnað sig á markaði án ríkisábyrgðar. Samkvæmt svarinu liggur þó ekki fyrir staðfest flokkun Hagstofunnar á félaginu í C-hluta ríkissjóðs.

Um áhættu ríkissjóðs ef umferð eða veggjaldstekjur verða minni en áætlað er segir ráðherrann að ríkissjóður sé eini eigandi félagsins og beri sem slíkur áhættu af rekstri þess. Afkoma félagsins endurspeglist í ríkisreikningi sem hlutdeild í afkomu dótturfélags.

Óskað var eftir sundurliðaðri kostnaðaráætlun Fljótaganga. Ráðherrann vísar í því sambandi til samgönguáætlunar 2026–2040, sem sé á forræði innviðaráðuneytisins. Kostnaðartölur eru ekki tilgreindar í svarinu.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅