Póstberi fann miða með beiðni um að hringja á neyðarlínuna - Þrjú fundust látin á heimilinu

Póstberi frá New Jersey Í New York sem fann miða sem leiddi til þess að þrjú lík fundust, hefur stigið fram og lýst atburðarásinni.

New York Post greinir frá því að Dom Clements hafi verið að sinna hefðbundinni vinnu sinni sem sendill fyrir UPS föstudaginn 6. nóvember, þegar hann kom auga á handskrifaðan miða á útidyrahurð húss í Mount Holly í New Jersey.

Embætti saksóknara í Burlington-sýslu segir í yfirlýsingu: „Saksóknari Burlington-sýslu, LaChia L. Bradshaw, og lögreglustjórinn í Mount Holly, Clifford Spencer, tilkynntu að þrír aldraðir einstaklingar hefðu fundist látnir í dag inni í húsi við götuna Winding Way, nálægt mörkum bæjarfélagsins og Eastampton.“

„Lögreglan í Mount Holly var kölluð á vettvang eftir að póstur fann miða á hurðinni þar sem hvatt var til þess að hringt yrði í neyðarlínuna (911). Engin hætta steðjar að almenningi vegna þessa atviks. Nöfn hinna látnu verða ekki gefin upp fyrr en aðstandendum hefur verið tilkynnt um andlátin.“

Í kjölfarið hefur verið hrundið af stað rannsókn.

Í samtali við New York Post sagði Clements að honum hefði þótt staðsetning miðans óvenjuleg, enda þekkti hann svæðið og nágrennið vel. „Mér fannst þetta skrýtið, því sá eini sem hefði getað séð þennan miða var ég,“ sagði hann. „Því ég er sá eini sem fer að húsinu á hverjum degi. Og það er bara þannig að enginn annar getur það; það er ekki hægt að sjá miðann utan frá lóðinni.“

Sagði Clements að honum hefði þótt miðinn „afar undarlegur“ og bætti við: „Sá eini sem fer upp að dyrunum er póstberinn. Þetta er skrýtið. Öll aðstæðan var skrýtin. Ég hugsaði bara: ‚Úff, þetta...‘ Þetta er ekki eitthvað sem gerist á hverjum degi, skilurðu?“

Á miðanum stóð „9-1-1 Inside“ (9-1-1 innandyra), ásamt teikningum af tveimur sorgmæddum andlitum. Ekki liggur fyrir hver skildi miðann eftir við húsið í New Jersey, en lögreglurannsóknin sem nú stendur yfir miðar að því að veita aðstandendum hinna látnu svör.

Nágranni sem vildi ekki láta nafns síns getið, sagði við New York Post að fjögur systkini byggju í húsinu. „Við höfum búið hér í rúmlega 50 ár. Þau voru hér á undan okkur, en héldu sig að mestu út af fyrir sig. Ég veit að ein systirin starfaði í mörg ár sem gangbrautarvörður. Börnin mín þekktu hana. Hún sinnti þessu starfi líka í skrúðgöngum og við önnur tilefni hér í bænum. Annar bróðirinn var eins og klukka. Hann gekk alltaf niður í 7-Eleven um hálfþrjú- eða þrjúleytið og gekk svo aftur til baka. Ég held að hann hafi keypt lottómiða og eitthvað að drekka. En annars fóru þau varla nokkurn tímann út úr húsi.“

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅