Carrick stýrði æfingu í dag - fundað í Mónakó
Michael Carrick stýrði æfingu Manchester United í dag á meðan stjórnendur héldu áfram ferli sem búist er við að endi með brottrekstri hans, samkvæmt The Athletic.
Omar Berrada, framkvæmdastjóri Manchester United, og Jason Wilcox, yfirmaður knattspyrnumála, eiga að mæta til Mónakó á leiðtogafund INEOS sem Sir Jim Ratcliffe stendur fyrir.
Búist er við að framtíð Carricks verði rædd, en Ratcliffe og Glazer-fjölskyldan þurfa að samþykkja hvers kyns brottrekstur.
United fullyrðir að engin ákvörðun hafi verið tekin, en vinna við að finna mögulega arftaka er hafin fyrir ferðina til Liverpool í ensku úrvalsdeildinni 22. nóvember.
Lið Carricks er í 18. sæti, sem er fallsæti, eftir aðeins einn sigur í tíu leikjum í ensku úrvalsdeildinni.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗