Enn einn skjálftinn í Bárðarbungu
Innlent | mbl | 10.11.2026 | 14:03
Bárðarbunga Myndin er tekin á flugi yfir þessu næsthæsta fjalli landsins skömmu áður en gos hófst í Holuhrauni fyrir rúmum áratug. Morgunblaðið/Þórður
Klukkan 13:37 reið yfir skjálfti að stærð 4,5 í Bárðarbungu í Vatnajökli, en engir eftirskjálftar hafa fylgt honum. Tveir aðrir stórir skjálftar riðu yfir Bárðarbungu í síðasta mánuði.
Í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands segir að skjálftar af þessari stærð séu algengir í Bárðarbungu.
Síðast varð skjálfti af þessari stærðargráðu í Bárðarbungu þann 19. október en sá mældist 5,2 að stærð, en þar áður varð skjálfti af stærð 4,7 þann 5. október. Skjálftar sem þessir hafa mælst reglulega síðustu misseri og tengjast kvikusöfnun í Bárðarbungu eftir Holuhraunsgosið 2014-2015.
Engin merki eru um gosóróa að mati Veðurstofunnar.
Í sumar sagði Magnús Tumi Guðmundsson að merki væru um að Bárðarbunga væri að þenjast út og þar væri hratt kvikuinnstreymi.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗