Fjórir menn ákærðir fyrir hættulega líkamsárás í Austurstræti
Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 10. nóvember 2026 14:00
Austurstræti 22. Mynd: Já.is
Fjórir karlmenn á aldrinum 22 til 24 ára hafa verið ákærðir fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás utandyra við Austurstræti 22 í Reykjavík, aðfaranótt laugardagsins 22. júní árið 2024.
Í ákæru héraðssaksóknara eru allir sakaðir um að hafa veist að ungum manni og einn sakborninganna sló hann tvívegis í höfuðið, annar kýldi hann í andlit og tveir mannanna hrintu honum í jörðina. Þrír mannanna veittust þar að honum með ítrekuðum spörkum í höfuð og efri búk, þar sem hann lá varnarlaus í jörðinni. Einn ákærðu dró brotaþola í framhaldinu eftir jörðinni í dágóða stund uns hann sparkaði tvívegis í höfuð hans af miklu afli. Brotaþoli hlaut áverka á andliti sem blæddi úr.
Einn sakborninganna er síðan ákærður fyrir hættulega líkamsárás, á sama stað og tíma, en gegn öðrum manni. Er hann sagður hafa slegið glerflösku í höfuð mansins með þeim afleiðingum að hann féll aftur fyrir sig og skall með höfuðið í jörðina og hlaut nefbeinsbrot, kinnbeinsbrot, liðhlaup í kjálka og opið sér á nefi sem þurfti að sauma.
Í ákærunni er ekki greint frá neinum bótakröfum en málið verður þingfest við Héraðsdóm Reykjavíkur þann 11. nóvember.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗