Minnkar notkun á samfélagsmiðlum - Neikvæð ummæli höfðu oft slæm áhrif á hann
Declan Rice, miðjumaður Arsenal og enska landsliðsins, hefur opnað sig um neikvæð áhrif samfélagsmiðla og ástæðuna fyrir því að hann ákvað að hætta að nota X, áður Twitter.
Rice, sem er 27 ára, hefur sjálfur orðið fyrir netníði en kærasta hans, Lauren Fryer, hefur einnig þurft að þola ljót ummæli um útlit sitt.
Árið 2024 eyddi Fryer öllum færslum sínum af Instagram eftir mikla gagnrýni á samfélagsmiðlum.
Rice segist hafa yfirgefið X fyrir þremur árum og ekki litið til baka. „Þú getur átt frábæran morgun en svo lestu eitt ummæli sem eyðileggur allan daginn,“ sagði Rice í viðtali við GQ.
„Ég held að einn af mínum stærstu styrkleikum sé að geta útilokað utanaðkomandi hávaða.“
Rice hefur einnig áhyggjur af áhrifum samfélagsmiðla á börn og ungmenni. „Ég held hundrað prósent að samfélagsmiðlar séu vandamál fyrir börn.“
Rice er sagður nálægt því að skrifa undir nýjan samning við Arsenal sem gæti tryggt honum 350 þúsund pund á viku.
Þrátt fyrir svimandi laun vill hann kenna fjögurra ára syni sínum, Jude, mikilvægi peninga.
„Peningarnir í fótboltanum eru fáránlegir. En maður vill ekki ala upp dekrað barn. Það þarf að skilja gildi vinnu og peninga.“
Rice hefur verið í lykilhlutverki hjá Arsenal sem situr á toppi ensku úrvalsdeildarinnar.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗