Þjóðverjar vilja taka fram úr SpaceX
Forstjóri Isar Aerospace vonast til þess að þýska fyrirtækið geti einn daginn tekið fram úr SpaceX, fyrirtæki Elons Musk, og orðið fremsta fyrirtæki heims á sviði geimskota.
Daniel Metzler, sem stofnaði fyrirtækið ásamt tveimur samnemendum sínum árið 2018, benti á gríðarlegan fjölda óafgreiddra skotpantana sem meðal annars má rekja til evrópskra hernaðarviðskiptavina.
„SpaceX var stofnað árið 2002. Á þeim tíma var ég að leika mér með Pokémon-spil,“ sagði hann. „Þegar litið er til þess sem gæti gerst á næstu 18 árum myndi ég ekki útiloka að við yrðum komin lengra en SpaceX.“
Í september varð Isar fyrsta evrópska fyrirtækið í einkafjármögnun til að koma eldflaug á sporbraut.
Evrópa veðjar á að samkeppni milli Isar og annarra aðila, svo sem Rocket Factory Augsburg, muni lækka verð á gervihnattaskotum.
Það myndi stuðla að því að tryggja hagkvæman aðgang að geimnum fyrir geira með allt frá fjarskiptum til varnarmála, óháð aðilum á borð við SpaceX, leiðandi fyrirtæki geirans sem metið er á 1,9 billjónir dala.
Metzler, sem talaði á ráðstefnu á vegum dagblaðsins SZ, sagði að Isar hefði þegar náð langt og benti á að SpaceX hefði þurft fjórar tilraunir til að komast á sporbraut en Isar aðeins tvær.
Afkastageta fremur en eftirspurn væri nú helsti flöskuhálsinn, bætti Metzler við.
Hann sagði að eftirspurn eftir geimskotum fyrirtækisins árið 2028 væri fimmtánföld á við framboðið, þar sem evrópsk stjórnvöld kysu nú frekar evrópska þjónustuaðila til að koma gervihnöttum sínum tengdum varnarmálum á loft fremur en fyrirtæki handan hafsins.
„Fyrir hverja eldflaug eru 14 viðskiptavinir sem við neyðumst til að valda vonbrigðum,“ sagði hann.
„Fyrir um 18 mánuðum voru 85 prósent fyrirspurna frá atvinnulífinu og 15 prósent frá hernum, og það hlutfall hefur síðan snúist við,“ bætti hann við.
内容来自 mbl.is - Tækni og Vísindi,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
