Laufey Lín geislaði á rauða dreglinum
Laufey Lín Jónsdóttir var fallega förðuð á CFDA Fashion Awards sem haldin voru í New York. Dimitrios Kambouris/Getty Images/AFP
CFDA-tískuverðlaunin voru veitt í New York á mánudaginn. Tónlistarmaðurinn Laufey Lín
Jónsdóttir glóði eins og demantur á viðburðinum. Hún fór í förðun hjá Ninu Park sem kallaði
fram allt það besta í andliti Laufeyjar.
Park notaði vörur frá Guerlain til þess að kalla fram enn meiri fegurð. Hún farðaði andlitið með Terracotta Le Teint Glow Foundation-farðanum og setti hyljara frá sama merki undir augun.
Hún notaði perlupúðrið Medium Beige Météorites Compact á kinnarnar og skyggði andlitið með sólarpúðrinu Terracotta The Bronzing Powder. Hún dró fram augnskuggapallettu sem lesendur Smartlands þekkja vel.
Þetta er Ombres G Eyeshadow Quad in 940 Royal Jungle, 258 Wild Nudes á augun og setti svo Noir G Mascara á augnhárin. The Eye Pencil in 02 Brown Earth fór í kringum augun til að búa til meiri svip. Augabrúnirnar voru náttúrulegar og notaði hún Brow G Brow Pencil í þær. Rouge G-varaliturinn var á sínum stað í litnum 11 Le Beige Noisette - Satin.
Laufey var með Guerlain-varalit úr Rouge G-línunni. Liturinn heitir Shade 11 Le Beige Noisette -Satin.
内容来自 Mbl.is - Tíska,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗


