Lögregla kölluð til vegna þriggja ára undrabarns
Lögregla var kölluð að fótboltaleik barna í Flórída eftir að foreldrar þriggja ára drengs héldu því fram að hann hefði verið tekinn út af fyrir að vera of góður, samkvæmt The Guardian.
„Þau eru bókstaflega að reka hann héðan af því að hann er of góður í fótbolta,“ sagði móðir Nevada við lögreglumenn á upptöku úr búkmyndavél.
Skipuleggjandi hjá i9 Sports gaf aðra lýsingu á atvikinu og sagði að drengurinn hefði ýtt við öðrum börnum og að foreldrar hans hefðu verið til vandræða þegar drengurinn var tekinn út úr leiknum.
„Strákurinn er góður. Hann er frábær. Virkilega góður,“ sagði skipuleggjandinn við lögregluna og viðurkenndi að Nevada væri lengra kominn en hinir leikmennirnir, en sagðist hafa beðið hann um að hrinda ekki.
Einn lögreglumaður heyrðist segja við samstarfsmann: „Mig langar eiginlega að sjá hann spila. Hann er örugglega mjög góður.“
Lögreglan í Winter Park sagði að fjölskyldan hefði verið samvinnuþýð og farið af fúsum og frjálsum vilja að lokum.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗