Laufey Lín geislaði á rauða dreglinum

Laufey Lín Jónsdóttir var fallega förðuð á CFDA Fashion Awards sem haldin voru í New York. Dimitrios Kambouris/Getty Images/AFP

CFDA-tískuverðlaunin voru veitt í New York á mánudaginn. Tónlistarmaðurinn Laufey Lín
Jónsdóttir glóði eins og demantur á viðburðinum. Hún fór í förðun hjá Ninu Park sem kallaði
fram allt það besta í andliti Laufeyjar.

Augu Laufeyjar voru förðuð með þessari augnskuggapallettu. Hún heitir Ombres G Eyeshadow Quad in 940 Royal Jungle, 258 Wild Nudes.

Park notaði vörur frá Guerlain til þess að kalla fram enn meiri fegurð. Hún farðaði andlitið með Terracotta Le Teint Glow Foundation-farðanum og setti hyljara frá sama merki undir augun.

Hún notaði perlupúðrið Medium Beige Météorites Compact á kinnarnar og skyggði andlitið með sólarpúðrinu Terracotta The Bronzing Powder. Hún dró fram augnskuggapallettu sem lesendur Smartlands þekkja vel.

Þetta er Ombres G Eyeshadow Quad in 940 Royal Jungle, 258 Wild Nudes á augun og setti svo Noir G Mascara á augnhárin. The Eye Pencil in 02 Brown Earth fór í kringum augun til að búa til meiri svip. Augabrúnirnar voru náttúrulegar og notaði hún Brow G Brow Pencil í þær. Rouge G-varaliturinn var á sínum stað í litnum 11 Le Beige Noisette - Satin.

Laufey var með Guerlain-varalit úr Rouge G-línunni. Liturinn heitir Shade 11 Le Beige Noisette -Satin.

Laufey var stórglæsileg í þessum svarta kjól.

Laufey var stórglæsileg í þessum svarta kjól. Leonardo MUNOZ/AFP

内容来自 Mbl.is - Smartland,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅