Íslandsvinur sakaður um kynferðisbrot gegn unglingsstúlkum
Breski rithöfundurinn og sjónvarpsmaðurinn David Walliams hefur verið sakaður um kynferðisbrot og óviðeigandi háttsemi gagnvart konum og unglingsstúlkum, allt niður í 15 ára.
Hann hafnar ásökununum og reyndi að fá dómstóla til að banna fjölmiðlum að fjalla um þær.
Nafn Walliams var birt í dag eftir að dómari hafnaði beiðni hans um lögbann í síðustu viku. Hann áfrýjaði ekki niðurstöðunni áður en frestur til þess rann út síðdegis í gær.
Ásakanirnar eru til umfjöllunar í sameiginlegri rannsókn fréttastofunnar ITN og dagblaðsins The Guardian. Fyrir dómi kom fram að rætt hefði verið við yfir hundrað manns, þar af þrjátíu sem byggðu frásagnir sínar á eigin reynslu eða því sem þeir höfðu orðið vitni að.
Segist hafa verið fimmtán ára
Walliams er sakaður um að hafa nýtt sér frægð sína og stöðu til að stofna til kynferðislegra samskipta við konur og stúlkur og misnotað aðstöðu sína gagnvart þeim.
Ein kvennanna, sem kemur fram undir nafninu Jade í umfjöllun ITV og The Guardian, segir Walliams hafa brotið kynferðislega gegn sér þegar hún var fimmtán ára, eftir að hafa komið á sambandi við hana á netinu.Vildi stöðva umfjöllun
Lögmenn Walliams byggðu beiðnina um lögbann á því að birting ásakananna gæti orðið til þess að hann svipti sig lífi. Þeir vísuðu því til réttar hans til lífs fremur en friðhelgi einkalífs.
Dómarinn Nicklin hafnaði beiðninni og taldi bann við umfjölluninni fela í sér alvarlega skerðingu á tjáningarfrelsi.
Walliams, sem er 55 ára, varð þekktur fyrir gamanþættina Little Britain og sat um árabil í dómnefnd Britain's Got Talent. Hann er jafnframt einn söluhæsti barnabókahöfundur heims og hafa bækur hans selst í meira en sextíu milljónum eintaka.
Útgáfufyrirtækið HarperCollins hætti að gefa út nýjar bækur eftir hann í fyrra í kjölfar ásakana um óviðeigandi hegðun gagnvart yngri konum í starfsliði fyrirtækisins. Í september tilkynnti fyrirtækið að það myndi einnig hætta útgáfu eldri bóka hans.
Walliams hefur frá upphafi hafnað því að hafa gert nokkuð rangt.
Óskaði eftir að heimsækja íslenskan grunnskóla
Walliams hefur nokkrum sinnum komið til Íslands og verið nefndur Íslandsvinur. Í nóvember 2022 kom hann hingað vegna bókmenntahátíðarinnar Iceland Noir, hitti unga lesendur í Bæjarbíói og áritaði bækur í Smáralind, þar sem hundruð manna biðu í röð eftir honum.
Í nóvember 2024 heimsótti hann Áslandsskóla í Hafnarfirði í fylgd fulltrúa íslenska útgefanda síns. Hann hafði sjálfur óskað eftir að heimsækja grunnskóla hér á landi og varð Áslandsskóli fyrir valinu. Þar sagði hann nemendum frá bókum sínum og fékk þá til að leggja til hugmyndir að nýrri sögu.
内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗