Ljósastaur á versta stað
Hjólastígum hefur fjölgað mikið á höfuðborgarsvæðinu undanfarin ár og kemst hjólreiðafólk nú leiða sinna á sérstökum aðskildum akreinum víða um borgina. Enn eru þó ýmis ljón á veginum við að bæta umgjörðina fyrir þennan samgöngumáta og þá spretta nýlegar hindranir stundum upp.
Eitt dæmi um þetta síðastnefnda má sjá á glænýjum hjólastíg meðfram efri hluta Laugavegar við Heklureitinn svokallaða þar sem nú er búið að byggja heilmiklar byggingar.
Þar fyrir framan liggja bæði hjóla- og göngustígar, en á miðri annarri akreininni stendur voldugur ljósastaur upp úr malbikinu.
Svipaða sögu er að segja litlu ofar, en sá staur er þó aðeins meira á milli akreina.
Ólíklegt verður að teljast að þetta fyrirkomulag fengi að líðast á almennum umferðargötum.
Ljósastaurarnir eru á hjólastíg sem liggur við efri hluta Laugavegar, en gamla hús Skattsins má sjá í bakgrunni. mbl.is/Eggert Jóhannesson
内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗

