Hegseth: „Pólitískt sjónarspil“

Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, heldur nú blaðamannafund í Pentagon, höfuðstöðvum bandaríska varnarmálaráðuneytisins. Þetta er í fyrsta sinn í sex mánuði sem hann ræðir þar við fjölmiðla. AFP

Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, gagnrýndi í dag áform um að ákæra hann til embættismissis og sagði þau „pólitískt sjónarspil“.

Að baki þeim stendur fráfarandi þingmaður sem er andstæðingur Donalds Trumps Bandaríkjaforseta.

„Það sem einn óánægður þingmaður, sem tapaði kosningu, er að reyna að gera felur hvorki í sér eftirlit né aðhald. Þetta er pólitískt sjónarspil, persónuleg stefnuyfirlýsing sprottin af sjálfhverfu og gremju,“ sagði Hegseth við blaðamenn í dag. 

Skemmdarverk

Hegseth sagði einnig að „við höfum séð þetta áður“ og vísaði til þess að Trump hefði verið ákærður til embættismissis vegna „fullkomins símtals“ árið 2019 og síðan aftur árið 2021.

Í bæði skiptin hefðu tilraunirnar til að koma Trump frá embætti mistekist og hann „snúið aftur sterkari“. Hegseth sagði að tilraunin myndi einnig mistakast nú.

„Þessi ályktunartillaga […] sendir óvinum okkar – Íran, glæpahringjunum og öllum andstæðingum okkar sem fylgjast með – þau skilaboð að Bandaríkin muni í raun refsa eigin hermönnum og borgaralegum leiðtogum fyrir að hafa staðið að árangursríkum og lögmætum hernaðaraðgerðum.

Þetta er ekki ættjarðarást. Þetta eru skemmdarverk.“

Skrípaleikur

Hegseth sagði að það sem „einn óánægður þingmaður, sem beið ósigur í kosningum,“ væri að reyna að gera snerist ekki um að draga hann til ábyrgðar. Þar vísaði hann til Thomasar Massies þingmanns, sem hóf í gær tilraun til að fá hann ákærðan til embættismissis.

„Þetta er skrípaleikur og sýndarmennska,“ segir hann og bætir við að enginn stríðsmálaráðherra hafi nokkru sinni verið ákærður til embættismissis fyrir að standa að „lögmætum hernaðaraðgerðum“.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅