Höfðar mál gegn OpenAI - Sakar ChatGPT um að aðstoða eiginkonuna við að skipuleggja morð á honum
James Gates frá Norður-Karólínu hefur höfðað mál gegn tæknifyrirtækinu á bak við ChatGPT og eiganda þess, Sam Altman, og heldur því fram að spjallþjónninn hafi aðstoðað konu sína við að skipuleggja morð á honum.
Gates slapp naumlega í júlí síðastliðnum eftir að hafa lifað af eitrun, en eiginkona hans, Cheryl Gates, skólasálfræðingur, er sökuð um tilraun til manndráps. Cheryl er sökuð um að hafa sett lyfseðilsskyld lyf og eiturplöntur í gosdrykki og orkudrykki eiginmanns síns eftir að hafa ráðfært sig við ChatGPT um hvaða lyfjasamsetningar gætu verið banvænar eða afar skaðlegar.
Það er fullyrt að Cheryl hafi notað spjallþjóninn mikið til að ræða allar gremjur í hjónabandi sínu, áður en dagleg samtöl snerust að heildarskipulagningu yrir morð eiginmanns síns.
Málið gegn OpenAI, sem höfðað hefur verið fyrir héraðsdómi San Francisco-sýslu, þar sem tæknifyrirtækið hefur höfuðstöðvar, fullyrðir að Cheryl hafi áður leitað að sprautum hjá Amazon. Lögreglan fann síðar dropateljara, sprautur, vog og hanska á heimili hennar við húsleit.
Cheryl Gates.
James lifði af meinta eitrunartilraun í júlí 2025, en hann segist hafa þurft marga mánuði til að átta sig á sífellt áhættusamri hegðun eiginkonu sinnar, áður en hann rakst á óhugnanleg samtöl hennar við ChatGPT.
Í yfirlýsingu, sem send var út fyrir hans hönd af lögfræðingum hans segir: „Eiginkona mín passaði ekki inn í þá mynd sem oft er dregin upp af „viðkvæmum“ notanda, en hún var engu að síður viðkvæm. Við erum það öll á einhverjum tímapunkti. Hún breyttist í manneskju sem ég þekkti ekki lengur. Og ég varð að manneskju sem hún vildi sjá dauða. Í næstum ár gat ég ekki skilið gjörðir hennar. Svo las ég spjallferilinn hennar. Hún var ekki ein að verki.“
Samkvæmt stefnunni hóf Cheryl að nota ChatGPT snemma árs 2025, eftir að eiginmaður hennar stakk upp á því að hún gæti nýtt forritið til að spara tíma við gerð skýrslna í starfi sínu sem iðjuþjálfi barna.
Þegar kom fram í júlí var hún sögð nota spjallmennið nánast daglega – ekki aðeins fyrir vinnutengd verkefni, heldur einnig til að spyrja um lyf, fá ráð varðandi daglegt líf og ræða hjónabandserfiðleika sína, sem virðast hafa stafað af fjárhagslegu álagi.
Í stefnunni segir: „ChatGPT virkaði eins og bergmálshellir og magnari; það ýtti undir vaxandi vantraust Cheryl og ranghugmyndir hennar um að eiginmaður hennar væri að njósna um hana og hygðist yfirgefa hana og börnin þeirra, og skilja þau eftir allslaus. Spjallþjónninn staðfresti upplifun Cheryl, hélt henni gangandi og hvatti hana til dáða með því að staðfesta tilefnislausan ótta hennar. Hann bjó til nýjar ástæður fyrir því að Cheryl ætti að óttast eiginmann sinn, veitti henni stöðugan hljómgrunn fyrir hugsanir hennar og lagði til hagnýt atriði varðandi morðtilraunina: hvaða efni skyldi nota, skammta miðaða við þyngd eiginmannsins, hvernig ætti að koma efnunum fyrir og hvernig mætti leyna verknaðinum.“
James tók fyrst eftir því að drykkirnir hans fóru að bragðast beiskt sumarið áður. Þann 10. júlí varð hann mjög veikur; hann fann fyrir hjartatengdum einkennum, kviðverkjum, miklum skjálfta, alvarlegri máttleysi og rugli.
Cheryl var síðar það ár ákærð fyrir morðtilraun og fyrir að hafa mengað mat eða drykk. Samkvæmt Los Angeles Times féllu saksóknarar hins vegar frá málinu í apríl 2026 vegna ónógra sönnunargagna.
Í yfirlýsingu til fjölmiðla sagði talsmaður OpenAI: „Öryggi er í forgangi. Við höfum lokað á þennan notanda og veitt lögreglu upplýsingar vegna rannsóknar hennar á málinu.“
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗