Bókaspjall: Þegar vináttan brestur
Vinátta – sönn vinátta – er jafnfágæt og hún er nauðsynleg sálarheill manna. Þennan boðskap má lesa út úr nýrri skáldsögu Sigurjóns Magnússonar, Þegar við lifum. Aðalpersónan Jakob er um fimmtugt og honum vegnar nokkuð vel í viðskiptum en einkalífið er í flækju og erfiðleikar í nánum samböndum hans. Sviksemi eiginkonu hans og bróður leika hann t.d. grátt og í upphafi sögunnar lætur erlendur vinur hans lífið í slysi í óbyggðum Íslands, fellur niður í jökulsprungu. Í kjölfar þess atburðar stofnar Jakob til kynna við systur hins látna sem upplýsir hann um að nýlátinn bróðir hennar hafi farið á bak við hann.
Þanin spenna kraumar undir yfirborðinu í samskiptum persóna og bak við fáfengileg samtöl ólgar hið ósagða uns það er sagt og það kemur til uppgjörs. Sumt í þessari einkar læsilegu sögu minnir mig á smásögur norska snillingsins Kjell Askildsen, sem var einkar lagið að draga upp myndir samskiptum hjóna í krísu. Einkum á þetta við um fyrsta hluta bókarinnar, sem gerist í sumarbústað þar sem lýst er miklu sundurlyndi hjónanna.
Jakob gengur í gegnum hremmingar í einkalífinu, hann er breyskur og stundum vanstilltur, einu sinni í sögunni beitir hann ofbeldi. En þegar á reynir hefur hann siðferðisvitund og hugrekki til að taka erfiðar en réttar ákvarðanir.
Sigurjón Magnússon er einn af þeim höfundum ávallt fangar athygli lesenda sinna og fær þá til að fletta áfram af eftirvæntingu. Söguefnin eru áleitin og stórar spurningar um hlutskipti mannsins eru ofnar inn í grípandi og spennandi frásögn. Frásagnarmátinn einkennist af spennu og ákefð. Skemmst er að minnast meistaralegrar spennusögu Sigurjóns frá árinu 2023, Geðbiluð ást, sem var sannkölluð rússíbanareið.
Þegar við lifum er öðruvísi saga, minni að umfangi, en líka uppfull af spennu, ástríðu og dramatík, eins og síðasta bók. Auk þess er hún grípandi og skemmtileg aflestrar. Lesendur Sigurjóns fagna hverri nýrri bók hans og munu ekki verða fyrir vonbrigðum með þetta ágæta verk.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗