Rafn og Anna fögnuðu sigri

Anna Soffía Grönholm, Arney Rún Jóhannesdóttir (dómari) og Saule Zukauskaite.

Anna Soffía Grönholm, Arney Rún Jóhannesdóttir (dómari) og Saule Zukauskaite. Ljósmynd/Tennissamband Íslands

Rafn Kumar Bonifacius úr HMR og Anna Soffía Grönholm úr TFK sigruðu í einliðaleik í meistaraflokki karla og kvenna á Stórmóti TFK í tennis sem fram fór í Tennishöllinni í Kópavogi dagana 5. til 8. nóvember.

Rafn Kumar vann Daniel Pozo úr Fjölni í úrslitaleik karla, 6:2 og 6:1. Ómar Páll Jónasson úr TFK varð þriðji eftir að Franko Juric úr HMR gaf leik þeirra um þriðja sætið.

Anna Soffía vann Saule Zukauskaite úr Fjölni í þriggja setta úrslitaleik kvenna, 5:7, 6:4 og 6:4. Gerður Líf Stefánsdóttir úr TFK tryggði sér þriðja sætið með sigri á Hildi Sóleyju Freysdóttur úr Víkingi, 6:1 og 6:0.

Daniel Pozo, Irka Jaroszynska (dómari) og Rafn Kumar Bonifacius.

Daniel Pozo, Irka Jaroszynska (dómari) og Rafn Kumar Bonifacius. Ljósmynd/Tennissamband Íslands

Í tvíliðaleik karla sigruðu Ómar Páll og Andri Mateo Uscategui Oscarsson úr TFK. Ingunn Erla Eiríksdóttir úr Fjölni og Kristín Inga Hannesdóttir úr HMR unnu kvennaflokkinn. Alfonso Jaime De Alba Portillo úr TFK og Ragnheiður Ásta Guðnadóttir úr Fjölni sigruðu í tvenndarleik.

Rafn Kumar og Anna Soffía eru bæði efst á stigalista Tennissambands Íslands þegar eitt stigamót er eftir á árinu. Rafn er með 700 stig, 120 stigum meira en Daniel Pozo. Anna er með 530 stig og aðeins 15 stigum á undan Sofíu Sóleyju Jónasdóttur úr TFK.

Síðasta stigamót ársins verður Jóla-Bikarmótið dagana 27. til 30. desember. Þar fær sigurvegari 150 stig og því getur enn orðið breyting á efstu sætum beggja lista.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅