Landsréttur staðfestir frávísun í samráðsmáli
Landsréttur staðfesti í gær úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um frávísun máls Alcoa Fjarðaáls gegn Eimskip og Samskipum.
Alcoa hafði krafist viðurkenningar á skaðabótaskyldu félaganna vegna meints tjóns af samráði þeirra á árunum 2008 til 2013.
Þetta kemur fram í tilkynningu Eimskips til Kauphallarinnar. Málið var höfðað gegn Eimskipafélagi Íslands hf., Eimskip Ísland ehf., Samskipum hf. og Samskip Holding B.V.
Krafðist áður rúmlega þriggja milljarða
Eins og mbl.is hefur áður greint frá höfðaði Alcoa mál gegn skipafélögunum árið 2024. Í því máli krafðist félagið rúmlega þriggja milljarða króna í skaðabætur, auk dráttarvaxta, vegna meints tjóns af samráðinu.
Samkvæmt tilkynningu Eimskips ákvað Alcoa í maí 2025 að fella það mál niður og greiða Eimskip málskostnað.
Alcoa höfðaði síðan mál að nýju í desember sama ár. Þá var ekki krafist greiðslu tiltekinnar fjárhæðar heldur viðurkenningar á skaðabótaskyldu félaganna.
Héraðsdómur Reykjavíkur vísaði því máli frá 5. júní síðastliðinn. Landsréttur hefur nú staðfest þá niðurstöðu.
Telur skilyrði skaðabótaskyldu ekki uppfyllt
Í tilkynningunni ítrekar Eimskip þá afstöðu sína að ekkert tilefni hafi verið til málsóknar Alcoa. Að mati Eimskips séu skilyrði skaðabótaskyldu ekki uppfyllt og ætlað tjón Alcoa ekki stutt haldbærum gögnum.
Málsókn Alcoa tengist samráðsmáli skipafélaganna. Eins og áður hefur verið fjallað um á mbl.is viðurkenndi Eimskip samkeppnislagabrot og gerði sátt við Samkeppniseftirlitið árið 2021. Félagið greiddi 1,5 milljarða króna sekt á grundvelli sáttarinnar.
内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗