Metur hlutafé Bláa Lónsins á 178 milljarða
Matið nemur 1.289 milljónum evra, sem jafngildir um 178 milljörðum króna miðað við 138 króna gengi evru sem notað er í greiningunni. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Jakobsson Capital metur hlutafé Bláa Lónsins á um 178 milljarða króna að teknu tilliti til fyrirhugaðra fyrirtækjakaupa og hlutafjáraukningar. Mikill vöxtur og bætt arðsemi á næstu árum eru meðal forsenda verðmatsins.
Matið nemur 1.289 milljónum evra, sem jafngildir um 178 milljörðum króna miðað við 138 króna gengi evru sem notað er í greiningunni.
Verðmatsgengi Bláa Lónsins er 137 krónur á hlut samkvæmt greiningunni, eða um 44% yfir 95 króna útboðsgengi í almennum hluta hlutafjárútboðs félagsins. Útboðið hófst í dag, 10. nóvember og stendur til 13. nóvember vegna fyrirhugaðrar skráningar á aðalmarkað Kauphallarinnar.
Kaupin á Arctic Adventures vega þungt í vaxtaráformum Bláa Lónsins. Samkvæmt skýrslunni liggur samþykki Samkeppniseftirlitsins fyrir og verður kaupverðið greitt með nýjum hlutum.
Kaupverð hlutafjár Arctic Adventures nemur 161,5 milljónum evra, en að viðbættum vaxtaberandi skuldum að frádregnu handbæru fé er heildarverðið 217,1 milljón evra. Með kaupunum bætast meðal annars jöklaferðir, köfun og norðurljósaferðir við þjónustu samstæðunnar.
Í rekstrarspá Jakobsson Capital er gert ráð fyrir að tekjur Bláa Lónsins, án húðvörustarfseminnar Skin Science, verði um 268 milljónir evra árið 2027 og nær 408 milljónir árið 2031.
Mikil uppbygging í Þjórsárdal
Uppbygging Mountain Retreat við Rauðukamba í Þjórsárdal er önnur meginstoð vaxtaráformanna. Stefnt er að opnun 40 herbergja lúxushótels vorið 2028 ásamt fjallaböðum og gestastofu. Þá eru fyrirhuguð 40 smáhýsi og tjaldsvæði.
Áætlaður framkvæmdakostnaður er 138 milljónir evra. Í verðmatinu er gert ráð fyrir að verkefnið auki árlegar tekjur um 67 milljónir evra þegar áhrif þess eru komin fram.
Eldsumbrot og fjárfestingar skapa óvissu
Verðmatið byggist á væntingum um verulegan tekjuvöxt og bætta arðsemi á næstu árum. Greinendur benda þó á að óvissa vegna eldsumbrota sé enn til staðar. Bláa Lónið var lokað í 76 daga vegna eldsumbrota árið 2024. Tekjur félagsins drógust saman um 18% það ár en kostnaður jókst um 4%, enda er stór hluti hans fastur.
Umfangsmikil uppbygging felur einnig í sér áhættu og byggir verðmatið á því að Mountain Retreat skili verulegum tekjum og rekstrarafgangi. Tafir, kostnaðarhækkanir eða lakari nýting en áætlað er gætu því haft áhrif á niðurstöðuna. Þá eru fyrirhuguð kaup tengd Jarðböðunum við Mývatn og Sjóböðunum á Húsavík enn háð samþykki Samkeppniseftirlitsins samkvæmt skýrslunni.
Afkoman er jafnframt háð eftirspurn eftir Íslandsferðum, flugframboði og þróun efnahagsmála. Styrking krónunnar gæti bæði dregið úr samkeppnishæfni Íslands sem áfangastaðar og aukið kostnað í evrum talið. Aukin samkeppni á baðlónamarkaði og breytingar á sköttum og gjöldum eru einnig meðal áhættuþátta sem greiningin tilgreinir.
Fram kemur í skýrslunni að Bláa Lónið hafi greitt Jakobsson Capital þóknun fyrir gerð greiningarinnar. Samkvæmt henni hafi félagið og starfsmenn þess ekki komið að úrvinnslu gagna eða greiningarvinnunni.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗