Byssu haldið að andliti drengs við meint rán
Meðal annarra mála sem maðurinn er grunaður í eru mál vegna stórfelldra líkamsárása, rána, frelsissviptingar og vopnalagabrota. Ljósmynd/Colourbox
Maður sem grunaður er um aðild að vopnuðu ráni gegn dreng í Reykjavík sætir áfram gæsluvarðhaldi eftir að Landsréttur vísaði máli hans frá í gær.
Maðurinn hafði kært gæsluvarðhaldsúrskurð héraðsdóms en engar ástæður voru tilgreindar fyrir kærunni.
Fjórtán önnur mál vegna meintra brota mannsins eru til meðferðar hjá lögreglu og ákæruvaldi. Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði hann í gæsluvarðhald til 2. desember vegna hættu á áframhaldandi brotum.
Engar ástæður tilgreindar fyrir kærunni
Gæsluvarðhaldsúrskurðurinn var kveðinn upp 4. nóvember og kærður tveimur dögum síðar. Maðurinn krafðist þess að úrskurðurinn yrði felldur úr gildi eða gæsluvarðhaldinu markaður skemmri tími. Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu krafðist staðfestingar úrskurðarins.
Landsréttur benti á að í skriflegri kæru bæri að tilgreina hvaða úrskurður væri kærður, hvaða breytinga væri krafist og á hvaða ástæðum kæran væri reist.
Í kærunni var ekkert vikið að ástæðum hennar. Þess í stað var áskilinn réttur til að skila greinargerð síðar. Taldi Landsréttur þessa annmarka leiða til þess að vísa yrði málinu frá.
Rétturinn tók því ekki efnislega afstöðu til gæsluvarðhaldsins og úrskurður héraðsdóms stendur óhaggaður.
Ógnað með skotvopni
Samkvæmt greinargerð lögreglu, sem rakin er í úrskurði héraðsdóms, lýsti drengurinn því að fjórir menn hefðu komið ógnandi að honum þegar hann var á heimleið. Hann hefði reynt að komast undan en einn þeirra náð honum og haldið skotvopni að andliti hans.
Mennirnir hefðu krafið hann um pakka sem hann hafði sótt í póstbox og farsíma hans. Þeir hefðu síðan farið inn á bankareikninga hans í símanum og millifært 120 þúsund krónur á reikning annars aðila.
Þegar drengurinn hefði útskýrt að frekari fjármunir væru á læstum reikningi hefði einn mannanna dregið upp hníf. Drengurinn lýsti því jafnframt að hann hefði verið sleginn í kjálkann og potað hefði verið í hann með skrúfjárni sem tekið var úr vinnubuxum hans. Samkvæmt greinargerðinni hlaut hann minniháttar áverka.
Taldi önnur úrræði ekki nægja
Meðal annarra mála sem maðurinn er grunaður í eru mál vegna stórfelldra líkamsárása, rána, frelsissviptingar og vopnalagabrota.
Verjandi hans lagði áherslu á að um ungan og viðkvæman mann væri að ræða. Gæsluvarðhald væri mjög íþyngjandi fyrir hann og gæta þyrfti meðalhófs.
Héraðsdómur taldi hins vegar fyrir liggja rökstuddan grun um brot sem fangelsisrefsing lægi við. Jafnframt væri hætta á að maðurinn héldi áfram brotum gengi hann laus.
Vísaði dómurinn til alvarleika meintrar háttsemi og þess að brotahrina hefði staðið nær sleitulaust frá því í ágúst. Ekki væri séð að unnt væri að stöðva hana að svo stöddu með öðrum hætti en gæsluvarðhaldi. Ekki þóttu heldur efni til að marka því skemmri tíma en lögregla krafðist.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗