Kveikti í Arsenal treyju - Tapaði veðmáli og varð að borga skuldina

Dele Alli, fyrrum leikmaður Tottenham og enska landsliðsins, vakti mikla athygli þegar hann reyndi að kveikja í Arsenal-treyju í beinni útsendingu á Twitch.

Alli hafði tapað veðmáli gegn bandaríska streymaranum iShowSpeed eftir að þeir mættust í tölvuleiknum EAFC 27.

Alli tapaði tveimur leikjum, 7-2 og 4-2, og þurfti í kjölfarið að klæðast treyju erkifjendanna í Arsenal.

„Fyrirgefið mér, stuðningsmenn Spurs, en veðmál er veðmál,“ skrifaði Alli á Instagram.

Hann ákvað þó fljótlega að bæta fyrir mistökin og birtist í beinni útsendingu þar sem hann reyndi að brenna treyjuna.

Alli, sem er þrítugur, er enn án félags eftir að hafa yfirgefið ítalska félagið Como þar sem hann lék aðeins einn leik.

Hann hefur æft með enska utandeildarliðinu Windsor & Eton og hafnaði nýlega tækifæri til að ganga til liðs við Salford City.

Alli vonast enn til að finna sér nýtt félag og koma ferlinum aftur á réttan kjöl.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅