Bandarískar vélar fluttar frá annarri breskri flugstöð

Frá Mildenhall-flugstöðinni.

Frá Mildenhall-flugstöðinni. AFP

Að minnsta kosti tíu eldsneytisflugvélar bandaríska flughersins yfirgáfu Mildenhall-herflugstöðina í Suffolk á Englandi í gær. Þetta er önnur herflugstöðin í Bretlandi sem bandarískar herflugvélar hafa verið fluttar frá á undanförnum vikum.

Flugrakningargögn sem sannprófunardeild BBC, BBC Verify, hefur skoðað sýna að vélarnar flugu frá Mildenhall og lentu í öðrum bandarískum herflugstöðvum í Evrópu og á Prestwick-flugvelli í Ayrshire í Skotlandi.

Wall Street Journal greindi frá því að vélarnar hefðu verið fluttar vegna ógnar frá Íran. BBC hefur þó ekki staðfest þær upplýsingar með sjálfstæðum hætti.

Brottför vélanna kemur nokkrum vikum eftir að Bandaríkjamenn fluttu sprengjuflugvélar sínar frá Fairford-herflugstöðinni vegna öryggisatviks sem grunur leikur á að tengist Íran.

Brottför vélanna kemur nokkrum vikum eftir að Bandaríkjamenn fluttu sprengjuflugvélar sínar frá Fairford-herflugstöðinni vegna öryggisatviks sem grunur leikur á að tengist Íran. AFP

Fylgdust með í gegnum Flightradar24

Aðspurður um flug vélanna í gær sagði talsmaður breska varnarmálaráðuneytisins við BBC:

„Við tjáum okkur að jafnaði ekki um umsvif annarra ríkja. Flugvélar og annar búnaður eru reglulega flutt milli staða eftir því sem hernaðaraðgerðir og önnur verkefni krefjast.“

BBC Verify gat með hjálp hins opna flugrakningarvefs Flightradar24 fylgst með eldsneytisflugvélum bandaríska flughersins af gerðinni KC-135 yfirgefa Mildenhall yfir daginn í gær.

Tvær vélanna flugu í fyrstu til bandarískra herflugstöðva í Þýskalandi og á Ítalíu. Sú fyrri sneri síðan aftur til Mildenhall áður en hún hélt í austur og lenti í Spangdahlem-herflugstöðinni í Þýskalandi. Hin flaug hringi yfir Aviano-herflugstöðinni á Ítalíu áður en hún hélt einnig til Spangdahlem og lenti þar.

Flugrakningargögn sýna jafnframt að átta aðrar bandarískar KC-135-eldsneytisflugvélar yfirgáfu Mildenhall síðar í gær.

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅