Kaldvík kynnir Seyðfirðingum starfsemina
Kaldvík býður íbúum Seyðisfjarðar og öðrum áhugasömum á opinn kynningardag næstkomandi fimmtudag. Kynningin fer fram í menningar- og félagsheimilinu Herðubreið milli klukkan þrjú og sex síðdegis.
Haft er eftir Ólöfu Helgu Jónsdóttur, framkvæmdastjóra mannauðs og menningar hjá Kaldvík, að opna húsið sé fyrst og fremst hugsað sem vettvangur fyrir samtal við Seyðfirðinga um starfsemi Kaldvíkur og þau áhrif sem laxeldi geti haft á nærsamfélagið.
„Við viljum bæði hlusta á sjónarmið íbúa og gefa þeim tækifæri til að kynnast starfseminni betur,“ segir hún og bætir við að starfsfólk fyrirtækisins og stjórnendur verði á staðnum til að svara spurningum og ræða bæði tækifærin og þær áskoranir sem fylgja starfseminni.
„Við vonum að sem flestir sjái sér fært að líta við, eiga við okkur gott samtal, kynnast fólkinu á bak við starfsemina og að sjálfsögðu smakka á góðum laxi,“ segir hún.
Starfa á allri virðiskeðju laxeldis
Þá kemur fram að Kaldvík hafi á undanförnum árum byggt upp umfangsmikla starfsemi á Austurlandi og sé nú einn af stærri atvinnurekendum á svæðinu, en hjá fyrirtækinu starfi um 200 manns, þar af um 140 á Austurlandi.
Starfsemin er sögð ná yfir fjölbreytta þætti virðiskeðju laxeldis, allt frá seiðaeldi og áframeldi í sjó til vinnslu, pökkunar, flutninga og sölu afurða á erlendum mörkuðum.
Á opna deginum segir Kaldvík að gestum gefist tækifæri til að kynnast þessari starfsemi, ræða við starfsfólk sem sinnir ólíkum störfum innan fyrirtækisins og fræðast um hvernig nútíma laxeldi fari fram.
„Sérstök áhersla verður lögð á að kynna þau fjölbreyttu störf sem verða til í tengslum við laxeldi, bæði innan fyrirtækisins og hjá þjónustu- og samstarfsaðilum,“ segir í tilkynningunni.
Eins verði fjallað um þau verkefni og þær áskoranir sem fylgi laxeldi.
Sagt styðja fjölbreytt atvinnulíf og verðmætasköpun
„Þar verður meðal annars lögð áhersla á fiskheilbrigði og velferð, umhverfisvöktun, tæknilausnir og þær aðgerðir sem miða að því að draga úr umhverfisáhrifum og bæta árangur í eldi.“
Þá segir í tilkynningu Kaldvíkur að uppbygging laxeldis geti skapað fjölbreytt atvinnutækifæri í þeim byggðarlögum þar sem starfsemin fari fram.
„Auk beinna starfa við eldi, fiskheilbrigði, tæknimál og rekstur verður til eftirspurn eftir þjónustu á sviði flutninga, viðhalds, vélbúnaðar, byggingarstarfsemi, rafvirkjunar, upplýsingatækni og annarrar sérhæfðrar þjónustu.“
Sömuleiðis geti aukin umsvif í tengslum við starfsemina búið fyrirtækjum í nærsamfélaginu til ný viðskiptatækifæri, meðal annars í verslun, ferðaþjónustu, gistingu og veitingarekstri.
„Á þann hátt getur uppbygging atvinnugreinarinnar stutt við fjölbreyttara atvinnulíf og verðmætasköpun á svæðinu.“
内容来自 Mbl.is - 200 mílur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗

