Ekkert því til fyrirstöðu að Ísland fari langt á HM
Íslenska karlalandsliðið í handbolta leit afar vel út í leikjunum tveimur gegn Úkraínu og Eistlandi í undankeppni EM 2028 á dögunum.
Báðir sigrarnir voru sannfærandi, sérstaklega gegn Úkraínu, en landsliðsþjálfarinn Snorri Steinn Guðjónsson leyfði sér að hvíla lykilmenn í seinni hálfleiknum gegn Eistlandi á sunnudaginn.
Byrjunarlið Íslands lítur virkilega vel út og það virðist vera kominn frábær taktur í sóknarleikinn með þá Gísla Þorgeir Kristjánsson, Janus Daða Smárason og Ómar Inga Magnússon fyrir utan.
Vissulega voru mótherjarnir ekki þeir sterkustu en í landsleik þurfa allir að vera á tánum og það kann góðri lukku að stýra að þrátt fyrir slaka mótherja virtist það ekki slá bestu leikmenn landsliðsins, sem spila í Meistaradeildinni nánast í hverri viku, út af laginu.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗