Þegar Trölli stal hjörtum áhorfenda

Leikfélag Reykjavíkur frumsýndi söngleikinn Þegar Trölli stal jólunum, sem byggir á samnefndri barnabók Dr. Seuss, á stóra sviði Borgarleikhússins á laugardag. Timothy Mason samdi handrit og söngtexta og Salka Guðmundsdóttir þýðir. Leikstjóri er Valur Freyr Einarsson og aðstoðarleikstjóri Sara Martí Guðmundsdóttir. Mel Marvin samdi tónlistina, tónlistarstjóri er Vignir Þór Stefánsson og um hljóðhönnun sér Þorbjörn Steingrímsson.

Það ríkir ávallt mikil eftirvænting á frumsýningu og enn meiri þegar margir gestanna eru barnungir og jafnvel að mæta í leikhús í fyrsta skipti. Stemningin tók á móti gestum strax við innganginn, glatt og hjálpsamt starfsfólk í sérstökum Trölla jólapeysum, forsalurinn skreyttur með jólatrjám og fleira jólaskrauti, hægt að versla alls konar Tröllavarning, meðal annars leikskrá, jólakúlur, nammibox, Tröllasnarl og fleira. Eftir sýningu var gestum síðan boðið upp á hlaðborð sem tók mið af yngri kynslóðinni með minipizzum og fleira góðgæti.

En að því sem mestu máli skiptir, sjálfum söngleiknum. Það kannast líklega flestir við kvikmyndina How the Grinch Stole Christmas, sem kom út árið 2000 og er skylduáhorf margra fjölskyldna í aðdraganda jóla. Þar er Jim Carrey í hlutverki Trölla og fer gjörsamlega hamförum í hlutverki sínu. Ég velti nokkuð fyrir mér hvernig klassísks bók Dr. Seuss og trylltur leikur Carrey myndu skila sér á svið Borgarleikhússins og sérstaklega leikmyndin, þar sem sagan skiptist í sífellu á milli bæjarins, sem á íslensku kallast Hvervík, og hellis Trölla. Ljóst var fljótlega eftir að sýningin hófst að óþarfi var að velta slíku fyrir sér, slíkir eru töfrar leikhússins og þeir sem koma að sýningunni hafa skrúfað hugmyndaflugið og hæfileikana í botn til að skila töfrunum til áhorfenda. Það er mikill metnaður lagður í söngleikinn hvar sem litið er, líkt og á við um fleiri stórar sýningar sem Borgarleikhúsið hefur sýnt í ár og undanfarin ár, og ánægjulegt að metnaðurinn er jafnvel enn meiri þegar um sýningar er að ræða þar sem markhópurinn er yngstu gestirnir og forráðamenn þeirra. 

Söngleikurinn er eins og áður sagði byggður á klassískri sögu Dr. Seuss og fjallar um Trölla sem býr í helli uppi í fjalli fyrir ofan þorpið Hvervík. Trölli er geðvondur og hatar jólin, ólíkt íbúum Hvervíkur sem allir elska jólin og keppast af miklum móð við að undirbúa allt sem gera þarf svo jólin verði sem hátíðlegust. Trölli ákveður að eyðileggja jólin fyrir íbúunum, og tekst að stela öllu steini léttari úr bænum sem tilheyrir jólunum. En tekst honum að eyðileggja jólahald og jólaskap Hvervíkinga?

Leikmyndin er sannarlega ævintýraleg og flókin í senn, og oft leyst úr málum með hugmyndaríkum hætti eins og til dæmis þegar Trölli dregur sleðann með öllu jóladótinu að helli sínum. Heiðurinn af leikmyndinni á Axel Hallkell Jóhannesson. Pálmi Jónsson hannaði lýsingu og myndböndin sem eru ómissandi hluti af leikmyndinni. María Th. Ólafsdóttir sá um búningana, sem eru litríkir og margir hugmyndaríkir, eins og til dæmis búningur Trölla. Tinna Ingimarsdóttir og Guðbjörg Ívarsdóttir hönnuðu leikgervi, en eins og komið hefur fram í innliti á bak við sviðið tekur það um klukkustund að koma Trölla í gervið. Og þarf margar hendur til að koma honum og öðrum leikurum í gervin. 

Hlutverkin eru fjölmörg, en athygli vekur að flestum þeirra skipta tveir leikarar á milli sín milli sýninga. 12 leikarar skipta á milli sín sex hlutverkum fullorðinna. Sex dansarar skipta með sér hlutverkum og eru dansar samdir af Kirsty McDonald og Patrick Terndrup. Sama er með barnahlutverkin, 12 börn skipta með sér sex hlutverkum barnanna og stóðu þau sig öll frábærlega. Iðunn Eldey Stefánsdóttir lék á frumsýningunni Hverdísi, sem heillar Trölla og nær að stækka hjarta hans. Skilaði hún sínu vel frá sér með barnslægri einlægni.

Iðunn Eldey Stefánsdóttir (lengst til vinstri) í hlutverki Hverdísar. Mynd: Borgarleikhúsið.

Fjöldasenurnar með leik, söng og dansi eru margar og gengur allt upp eins og vel smurð vél. Margt að fylgjast vel og upplifa á sviðinu. Textinn er meira og minna rím, og skilaði sér vel, en í einu eða tveimur lögum fannst mér tónlistin aðeins yfirgnæfa sönginn, en það er eitthvað sem má fínpússa. Ég saknaði þess þó að söngtextarnir eru ekki í leikskránni og að í sýninguna vantaði lagið Hvar eru jólin? (e. Where Are You Christmas?) sem var í kvikmyndinni með Carrey, en mögulega er það ekki hluti af söngleiknum.

Mynd: Borgarleikhúsið.

Þeir einu sem standa á sviðinu allar sýningar eru þeir sem leika Trölla og gamla Max. Hilmir Jensson er í hlutverki gamla Max, hundsins sem er tryggur og trúr Trölla húsbónda sínum þrátt fyrir allt sem húsbóndinn lætur yfir hann og aðra ganga. Gamli Max er jafnframt sögumaðurinn, og skemmtilegt er að hann er sýndur á þremur aldursbilum með þremur leikurum. Hilmir skilar sínu með tryggum og öruggum hætti.

Theodór Elí Kristjánsson og Hilmir Jensson í hlutverkum litla Max og gamla Max. Mynd: Borgarleikhúsið.

Og þá að óumdeildri stjörnu söngleiksins. Það er erfitt að sjá fyrir sér að nokkur annar en Björgvin Franz Gíslason hefði getað farið í föt Trölla, þeir sem þekkja til hans vita að hann býr yfir meiri orku en flestir og sú orka er nýtt til fulls hér. Björgvin Franz er gjörsamlega í essinu sínu í ærslafullu hlutverki og nær að fá áhorfendur til að skellihlægja yfir fýlunni og látunum í sér, og að finna til með Trölla í öðrum aðstæðum, enda hjarta hans minna en hjá okkur hinum. 

Björgvin Franz Gíslason í hlutverki Trölla. Mynd: Borgarleikhúsið.

Nóg er af boðskap í sýningunni og sögunni og einn þeirra er að finna til með þeim sem eru öðruvísi, upplifa sig útundan og afskipta, og að sýna þeim samkennd, samhug, vináttu og ást. Enda stækkar hjarta Trölla um leið og honum er sýndur skilningur, samkennd og vinátta. Náði Trölli að stela hjörtum áhorfenda um leið og hann áttaði sig á villu síns vegar og skilaði jólunum til Hvervíkinga. 

Annar boðskapur sögunnar er að jólin eru ekki keppni um hver á mesta og dýrasta glingrið, heldur samvera með þeim sem skipta mann mestu máli og manni þykir vænst um. Sá boðskapur er enn ríkur í hjörtum barnanna og óskandi er að hann skili sér einnig til hinna fullorðnu og þeir taki töfra Trölla með sér úr í hversdaginn að söngleiknum loknum. Ég er á leið aftur á sýninguna í byrjun desember og er þegar farin að hlakka til að heillast aftur af töfrum Trölla. 

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅