Hlógu og mynduðu á meðan mennirnir loguðu

Myndbandið, sem hefur fengið meira en 1,5 milljónir áhorfa á samfélagsmiðlinum X, sýnir mennina tvo velta sér um á jörðinni, alelda. Í kringum þá stendur hópur fólks sem hlær og tekur myndskeið. Ljósmynd/Colourbox

Ríkisháskólinn í Ohio í Bandaríkjunum hefur stöðvað starfsemi bræðralags við skólann tímabundið eftir að myndband birtist af tveimur ungum mönnum í ljósum logum.

Bræðralög eru félög karlkyns háskólanema sem eru algeng við bandaríska háskóla.

Staðarmiðlar greindu frá málinu í gær. Myndbandið, sem hefur fengið meira en 1,5 milljónir áhorfa á samfélagsmiðlinum X, sýnir mennina tvo velta sér um á jörðinni, alelda. Í kringum þá stendur hópur fólks sem hlær og tekur myndskeið.

„Háskólanum er kunnugt um þetta atvik, sem vekur miklar áhyggjur, og viðkomandi einstaklingar fá nauðsynlega læknisaðstoð,“ sagði Ben Johnson, talsmaður skólans, í yfirlýsingu sem fréttastöðin WCMH-TV vitnaði í.

„Ríkisháskólinn í Ohio hefur stöðvað starfsemi bræðralagsins Sigma Alpha Epsilon tímabundið á meðan ítarleg rannsókn fer fram.“

Lögreglan í Columbus greindi frá því að hún rannsakaði málið einnig.

Gagnrýnd vegna samkvæma og busavígslna

Bræðralög við bandaríska háskóla hafa lengi sætt gagnrýni vegna áfengisneyslu í samkvæmum og busavígslna sem geta leitt til kynferðisofbeldis, slysa og jafnvel dauðsfalla.

Cornell-háskóli bannaði í síðasta mánuði samkvæmi og félagsviðburði bræðralaga það sem eftir lifir skólaársins í kjölfar meintrar hópnauðgunar hjá einu bræðralagi skólans. Málið hefur vakið mikinn óhug í Bandaríkjunum.

Á vef Sigma Alpha Epsilon segir að bræðralagið hafi „mótað menn til forystu“ frá stofnun þess árið 1856.

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅