Segja tvö olíuflutningaskip í ljósum logum
Byltingarvarðliðið sagði að annað skipanna, risatankskip, hefði siglt á tundurdufl og sprenging orðið í kjölfarið. Myndin er úr safni og sýnir flutningaskip á siglingu í Hormússundi. AFP
Talsmenn íranska byltingarvarðarins sögðu í dag að tvö olíuflutningaskip væru í ljósum logum á Hormússundi eftir miklar sprengingar. Annað skipanna hefði siglt á tundurdufl en hitt lent í óhappi í fylgd bandaríska hersins.
Frá því stríðið í Mið-Austurlöndum hófst í lok febrúar hafa stjórnvöld í Íran takmarkað siglingar um sundið verulega og krafist þess að skip fylgi siglingaleiðum sem þau hafa samþykkt. Íranar hafa ítrekað beint aðgerðum gegn skipum sem sigla um sundið án leyfis þeirra.
Bandarísk yfirvöld hafa brugðist við með því að setja hafnbann á írönskar hafnir og aðstoða tankskip við siglingar um sundið. Að jafnaði fer um fimmtungur olíu heims um Hormússund.
Segja annað skipið hafa siglt á tundurdufl
„Tvö olíuflutningaskip sem brutu gegn reglum með því að sigla óheimila leið um Hormússund hafa stöðvast eftir miklar sprengingar og loga nú,“ sagði í yfirlýsingu byltingarvarðliðsins.
Hvorki var greint frá nöfnum skipanna né hvaðan þau væru.
Byltingarvarðliðið sagði að annað skipanna, risatankskip, hefði siglt á tundurdufl og sprenging orðið í kjölfarið.
„Hitt tankskipið, sem var í fylgd árásarhers Bandaríkjanna og reyndi að komast leynilega um ólöglega siglingaleið, lenti einnig í óhappi,“ sagði varðliðið.
Bandaríkjaher segist hafa fjarlægt öll tundurdufl
Stjórnvöld í Íran hafa ítrekað greint frá því undanfarnar vikur að kviknað hafi í skipum á sundinu. Þau hafa sagt að sum skipanna hafi siglt á tundurdufl, en bandaríski herinn fullyrti nýverið að öll tundurdufl hefðu verið fjarlægð úr sundinu.
Miðherstjórn Bandaríkjahers, sem stýrir hernaðaraðgerðum Bandaríkjanna á svæðinu, sagði jafnframt í síðasta mánuði að hún hefði aðstoðað ríki við Persaflóa við að flytja út 1,5 milljarða tunna af olíu um Hormússund frá því í sumar.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗